Athugun á aflögun ísganganna og yfirborðshraða á Langjökli

Árið 2015 hóf Sif Pétursdóttir mælingar til að fylgjast með aflögun ísganga í Langjökli og í þessari ritgerð er þeim mælingum fylgt eftir. Einnig voru gerðar mælingar á skriðstikum til að fá yfirborðshraða Langjökuls, verkefni sem er í umsjá Finns Pálssonar. Þremur nýjum mæli punktum var bætt við af...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Daníel Grímsson 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26197
Description
Summary:Árið 2015 hóf Sif Pétursdóttir mælingar til að fylgjast með aflögun ísganga í Langjökli og í þessari ritgerð er þeim mælingum fylgt eftir. Einnig voru gerðar mælingar á skriðstikum til að fá yfirborðshraða Langjökuls, verkefni sem er í umsjá Finns Pálssonar. Þremur nýjum mæli punktum var bætt við aflögumælingarnar frá Sif. Sá fyrsti er staðsettur framan við þann stað þar sem göngin skiptast í tvennt. Annar punktur er staðsettur í hjarni og sá síðasti í jökulís. Aflögunarmælingar sýndu að í fyrsta punktinum þar sem farg er lítið ofan á göngunum og umferð manna og tækja mikil höfðu göngin víkkað lítillega. Aflögunarmæling í hjarninu sýndu enga breytingu og þriðji punkturinn, í jökulísnum, var sá eini sem sýndi örlitla aflögun ganganna. Niðurstöður úr yfirborðs hraðamælingum sýndu lítilega hraðaaukningu miðað mælingar fyrra árs. Niðurstöðum þessarra tveggja mælinga, yfirborðshraða og aflögunarhraða, eru gerð skil og þær settar í samhengi við aðstæður.