Mosabruninn á Miðdalsheiði: Áhrif hans á smádýr

Árið 2007 varð umfangsmikill gróðurbruni á Miðdalsheiði í Mosfellsbæ, líklega með stærstu gróðureldum sem orðið hafa á höfuðborgarsvæðinu. Alls brunnu um 0,89 km2 af heiðalandi þar sem mosategundin hraungambri (Racomitrium lanuginosum) er ríkjandi ásamt lyngi, grösum og stinnastör (Carex bigelowii)....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthías Svavar Alfreðsson 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26190
Description
Summary:Árið 2007 varð umfangsmikill gróðurbruni á Miðdalsheiði í Mosfellsbæ, líklega með stærstu gróðureldum sem orðið hafa á höfuðborgarsvæðinu. Alls brunnu um 0,89 km2 af heiðalandi þar sem mosategundin hraungambri (Racomitrium lanuginosum) er ríkjandi ásamt lyngi, grösum og stinnastör (Carex bigelowii). Á Miðdalsheiði gafst einstakt tækifæri til þess að rannsaka þau áhrif sem slíkur bruni hefur á smádýr og gróður til lengri og skemmri tíma. Strax í kjölfar brunans 2007 voru lögð út snið til gróðurmælinga og til að veiða smádýr í fallgildrur svo meta mætti áhrifin á lífríkið. Náðu sniðin yfir brunnið land og óbrunnið til samanburðar. Smádýraveiðar voru endurteknar árið 2013 og gróður mældur við gildrur. Niðurstöður gróðurmælinga sýndu að heildargróðurþekja hafði aukist nokkuð frá fyrri mælingum (úr 0,5% í 33%). Meðalþekja háplantna hafði sömuleiðis aukist verulega (úr 3% í 30%). Týtulíngresi (Agrostis vinealis), túnvingull (Festuca rubra) og blávingull (F. vivipara) sýndu mesta þekju 2013. Alls veiddust 8.239 dýr bæði árin. Þau voru greind í 67 ættir og 162 tegundir og reyndist tegundafjölbreytni vera meiri hjá fleygum smádýrum en þeim jarðbundnari. Árið 2007 hafði bruninn jákvæð áhrif á veiðar á bjöllum (Coleoptera) og tvívængjum (Diptera). Lítil áhrif voru hinsvegar merkjanleg á veiðar á köngulóm (Araneae) en neikvæð á skortítur (Hemiptera), æðvængjur (Hymenoptera) og langfætlur (Opiliones). Sex árum eftir brunann höfðu orðið miklar breytingar á smádýrasamfélaginu. Á brunnu landi veiddust fleiri smádýr árið 2013 en 2007 og hafði tegundafjölbreytni aukist. Bruninn virtist þá hafa haft jákvæð áhrif á bjöllur, tvívængjur og æðvængjur en köngulær, langfætlur og skortítur héldust í nokkru jafnvægi sem tegundahópar. Viðbrögð einstakra tegunda við brunanum voru hins vegar breytileg og því var hver tegund skoðuð sérstaklega. Engu að síður virtist brunnið land hafa haft mjög góð áhrif á heildarmynd smádýrsamfélagsins einkum samfara aukinni þekju grastegunda.