Jákvæðar og neikvæðar hliðar fullkomnunaráráttu. Upplifanir náms- og starfsráðgjafa á Íslandi og í Svíþjóð

Markmið þessarar ritgerðar var að öðlast innsýn í hvernig náms- og starfsráðgjafar á Íslandi og í Svíþjóð upplifa jákvæða og neikvæða fullkomnunaráráttu meðal nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi. Jákvæð fullkomnunarárátta felur í sér að geta sætt sig við hið æskilega, er ekki letjandi og hvorki...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rut Kaliebsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26169
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar var að öðlast innsýn í hvernig náms- og starfsráðgjafar á Íslandi og í Svíþjóð upplifa jákvæða og neikvæða fullkomnunaráráttu meðal nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi. Jákvæð fullkomnunarárátta felur í sér að geta sætt sig við hið æskilega, er ekki letjandi og hvorki neikvæð hugsunareinkenni né neikvæðar tilfinningar fylgja i kjölfarið. Neikvæð fullkomnunarárátta er letjandi fyrirbæri og hefur neikvæð hugsunareinkenni og tilfinningar í för með sér. Tilgangur verkefnisins var einnig að öðlast skilning á því hvernig náms- og starfsráðgjafar upplifa áhrif þessara fyrirbæra í tengslum við markmiðssetningu, vinnubrögð og líðan meðal nemenda. Rannsóknin byggist á viðtölum við átta þátttakendur sem allir hafa starfsreynslu í grunn- og framhaldsskólum, fjórir úr hvoru landi. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að náms- og starfsráðgjafarnir telji fullkomnunaráráttu neikvætt fyrirbæri, en einstaka sinnum jákvæða upp að vissu marki. Fyrirbærið er mælanlegt með prófkvarðanum Frost, sem gerir mögulegt að mæla magn hegðunareinkenna, hugsanir og tilfinningar en fæstir þátttakenda þekktu til þessa kvarða. Þátttakendur í báðum löndum báru allir kennsl á tiltekin mögulegan hóp sem ekki þarf á sálfræðilegri aðstoð að halda en hefði gott af því að læra að vinna öðruvísi. Betra aðgengi að skólasálfræðingum í Svíþjóð gerir það að verkum að mál er snúa að persónulegri ráðgjöf kemur síður inn á borð til náms- og starfsráðgjafanna í Svíþjóð, en þeirra tími fer að mestu í upplýsingagjöf og náms- og starfsfræðslu. Meiri tími fer í persónulega ráðgjöf á Íslandi. The aim of this thesis was to gain insight into how guidance and career counsellors in Iceland and Sweden experience positive and negative perfectionism among pupils in primary and secondary schools. Positive perfectionism involves the ability to accept the ideal without any negative feelings or thought symptoms. Negative perfectionism is an inhibitory phenomenon entailing negative thought symptoms and emotions. The aim of the project was also ...