Andleg vanlíðan verðandi foreldra á meðgöngu: Áhrif þess á maka og á gæði parasambands

Lokaverkefni þetta er byggt á stærri rannsókn um fjölskyldumiðaða hjúkrunarmeðferð við vanlíðan kvenna á meðgöngu. Rannsóknin var unnin og framkvæmd af leiðbeinendum þessa verkefnis á tímabilinu 2007-2009. Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvort andleg vanlíðan verðandi foreldra hafi áhrif á líð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sara Lovísa Halldórsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2616
Description
Summary:Lokaverkefni þetta er byggt á stærri rannsókn um fjölskyldumiðaða hjúkrunarmeðferð við vanlíðan kvenna á meðgöngu. Rannsóknin var unnin og framkvæmd af leiðbeinendum þessa verkefnis á tímabilinu 2007-2009. Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvort andleg vanlíðan verðandi foreldra hafi áhrif á líðan maka þeirra og á gæði parasambands. Úrtak rannsóknarinnar voru verðandi mæður (n=57) sem voru á öðrum þriðjungi meðgöngunnar (12-32 vikur) og makar þeirra (n=47). Mæðurnar áttu það sameiginlegt að hafa lýst yfir andlegri vanlíðan í meðgönguvernd í Reykjavík og verið vísað til geðteymis heimahjúkrunar. Notast var við Edinborgar þunglyndiskvarðann (EDS) við mat á andlegri vanlíðan og Samskiptakvarða Spaniers (DAS) við mat á gæðum parasambands. Við greiningu gagna var notuð lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. Helstu niðurstöður voru að ekki reyndist vera marktæk fylgni milli vanlíðan hinnar verðandi móður og föður á EDS. Talsvert hátt hlutfall af verðandi feðrum í úrtakinu upplifðu andlega vanlíðan miðað við erlendar rannsóknir á feðrum á meðgöngu. Ekki reyndist vera marktækur munur á líðan einstaklings eftir því hvort maki hans upplifði vanlíðan eða ekki. Ekki reyndist heldur fylgni milli vanlíðan móður og hvernig hún eða maki hennar mátu gæði sambandsins skv. DAS. Hinsvegar var marktæk fylgni á vanlíðan föður við mat parsins á gæðum sambands þeirra skv. DAS. Bæði hinn verðandi faðir og maki hans mátu gæði sambands síns marktækt verr ef hinn verðandi faðir glímdi við andlega vanlíðan.