Merking trúar hjá fólki á efri árum. Hvert er eðli trúar og trúleysis í hugum eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu

Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt, að finna hvað trú eða trúleysi merkir í hugum eldra fólks á höfuðborgarsvæðinu og að kanna hvort öldrunarinnsæis (e. gerotranscendence) gæti hjá þeim. Eigindleg rannsókn var notuð þar sem átta þátttakendur voru fengnir úr fjórum sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bára Friðriksdóttir 1963-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26145
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt, að finna hvað trú eða trúleysi merkir í hugum eldra fólks á höfuðborgarsvæðinu og að kanna hvort öldrunarinnsæis (e. gerotranscendence) gæti hjá þeim. Eigindleg rannsókn var notuð þar sem átta þátttakendur voru fengnir úr fjórum sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins. Þeir komu úr félagsstarfi á vegum sveitafélaganna. Leitast var eftir að hafa kynjahlutfall jafnt og tóku jafnmargar konur og karlar þátt. Öldrunarinnsæi sem er ein af nýjustu kenningum í öldrunarfræði er kynnt sérstaklega í fræðilegum kafla. Niðurstöður sýna að einstaklingarnir upplifa trú eða trúleysi hver á sinn hátt. Til að greina það var notuð túlkunarleg fyrirbærafræði. Þátttakendur voru allir kristnir fyrir utan einn. Trúarkenningar voru ekki miðlægar hjá þeim en voru til staðar í mis miklum mæli. Það sem var sameiginlegt í trú og verður að vera til staðar til að sýna eðli hennar er traust, það er samband á milli aðila í bæn og upplifun og að maðurinn geti reitt sig á æðri mátt sem líka nefnist Guð, Jesús eða örlög. Þessi æðri máttur er góður og stendur með manninum. Það kom skýrt í ljós að flestir þátttakendur töldu að með hugtakinu trúarreynsla væri verið að vísa í dulræna reynslu. Niðurstöður rannsóknar í öldrunarinnsæi gefa vísbendingu um öldrunarinnsæi hjá þátttakendum og þá sérstaklega í þáttum um sátt við lífið og dauðann, þörf fyrir einveru og að geta valið sér félagsskap og vera vandlátur á hann. Öldrunarinnsæiskenningin veitir fagstéttum og almenningi aðgang að hugarheimi öldungsins og eykur skilning fyrir þörfum hans. Það er þörf á að fræða heilbrigðisstéttir og fagstéttir sem koma að öldruðum um öldrunarinnsæið. Einnig er það brýnt fyrir kristnar kirkjur að huga að hvort boðun hennar nái nægilega vel til safnaðarbarna. Lykilorð: Aldraðir, öldrunarinnsæi, öldrunarfræði, gerotranscendence, trú, trúleysi, bæn, mótlæti, spíritismi, Guð, æðri máttur, trúarreynsla. The aim of this study is to find the essence of how older people in Iceland understand faith and atheism. Another aim is to find out if the ...