„Ómetanleg gjöf“: Reynsla kvenna sem hafa gefið og þegið egg á Íslandi

Ör þróun í frjósemisvísindum hefur opnað nýjar leiðir til barneigna undanfarna áratugi. Ein af þessum leiðum er egggjöf, sem hefur verið stunduð hér á landi frá árinu 1996. Markmið rannsóknarinnar er að afla þekkingar á reynslu kvenna sem hafa gefið og þegið egg og hugmyndum þeirra um skyldleika og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þóra Ágústa Úlfsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26110
Description
Summary:Ör þróun í frjósemisvísindum hefur opnað nýjar leiðir til barneigna undanfarna áratugi. Ein af þessum leiðum er egggjöf, sem hefur verið stunduð hér á landi frá árinu 1996. Markmið rannsóknarinnar er að afla þekkingar á reynslu kvenna sem hafa gefið og þegið egg og hugmyndum þeirra um skyldleika og mikilvægi þess að þekkja líffræðilegan uppruna sinn. Gagna var aflað með eigindlegum, hálfstöðluðum viðtölum við tíu konur sem höfðu gefið egg og sjö konur sem höfðu þegið egg á Íslandi og átt barn í framhaldinu. Haft var uppi á konunum með markmiðaúrtaki, snjóboltaúrtaki og sjálfvöldu úrtaki. Þær höfðu misjafna reynslu af egggjöf, sumar upplifðu hana eingöngu á jákvæðan hátt á meðan hún tók meiri toll af öðrum. Allar lögðu konurnar þó áherslu á hversu stór gjöf egggjöf væri og mikilvægi þess að börn nytu réttar á að vita hvernig þau voru getin. Ljóst er af niðurstöðum að skyldleiki er flókið hugtak sem konurnar veittu áhugaverða og ólíka sýn á. Margar töluðu um að úrbóta væri þörf þegar kemur að gjafaferlinu, til dæmis þyrfti að veita einstaklingsmiðaðri þjónustu. Því má vona að rannsóknin muni verða til þess að bæta ferlið. Þörf er á frekari rannsóknum á egggjöf – þá fyrst og fremst á þeim börnum sem verða til. Rapid evolution in reproductive technology has made it possible to make babies in countless new ways. One of those ways is egg donation, which has been practiced in Iceland since 1996. The goal of this research is to gain knowledge about women’s experience of egg donation, both women who have given their eggs and women who have received donation, and what ideas they have concerning kinship and the importance of knowing one’s biological origin. Data was gathered by qualitative, half-constructed interviews with ten women who had donated eggs and seven women who had received eggs in Iceland and had a baby in the following. The women were found by snowball, purposive and self-selected sampling. They had varied experience with egg donation. Some had only positive experience while it took more toll on others. All ...