SIS - matið og hvað svo? Þörf fatlaðs fólks fyrir stuðning í daglegu lífi

Frá árinu 2009 hefur svokallað SIS-mat verið notað hér á landi til að meta þörf fatlaðs fólks fyrir aðstoð. Fáar rannsóknir hafa þó verið gerðar á upplifun fatlaðs fólks á matinu og hvernig það endurspeglar þjónustuþörf þess í raun. Markmið rannsóknarinnar var þríþætt: a) að varpa ljósi á reynslu og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjargey Una Hinriksdóttir 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26075
Description
Summary:Frá árinu 2009 hefur svokallað SIS-mat verið notað hér á landi til að meta þörf fatlaðs fólks fyrir aðstoð. Fáar rannsóknir hafa þó verið gerðar á upplifun fatlaðs fólks á matinu og hvernig það endurspeglar þjónustuþörf þess í raun. Markmið rannsóknarinnar var þríþætt: a) að varpa ljósi á reynslu og upplifun fatlaðs fólks af því að fara í SIS - mat, b) hvernig fatlað fólk upplifði matið endurspegla þörf sína fyrir aðstoð, og c) hvernig þörfum þess var mætt að mati loknu. Rannsóknin var eigindleg og fylgdi fyrirbæralegri nálgun. Gagna var aflað með opnum viðtölum við tólf einstaklinga, sex með þroskahömlun og sex með hreyfihömlun. Þátttakendur voru búsettir í Reykjavík, höfðu farið í gegn um SIS - mat og fengu aðstoð út frá Lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Þátttakendur lýstu góðri reynslu af því að fara í gegnum matið þótt tilgangur þess hafi ekki verið öllum fyllilega skýr. Þátttakendur með þroskahömlun töldu SIS - matið almennt endurspegla vel þörf sína fyrir aðstoð, en það átti mun síður við um þátttakendur með hreyfihömlun. Niðurstöður matsins höfðu ekki haft áhrif á þá aðstoð sem þátttakendur fengu og í ýmsum tilvikum áttu þeir rétt á meiri aðstoð hefðu niðurstöðurnar verið hafðar að leiðarljósi. Þátttakendur óskaðu eindregið eftir stöðugleika en jafnframt sveigjanleika í þjónustu og að aðstoð væri til staðar þegar hennar er þörf. Lögð var áhersla á einstaklingsmiðaðan stuðning til að lifa eðlilegu lífi og vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Mikilvægt er að fatlað fólk fái tækifæri til að skilgreina þjónustuþörf sína sjálft og viðeigandi aðstoð svo það hafi tækifæri til fullgildrar þátttöku í samfélaginu. From the year 2009 the SIS – evaluation (Supports Intensity Scale) has been used in Iceland to evaluate the need for assistance for disabled people. Few studies have reflected disabled people’s experience of the evaluation and how they consider it to reflect their need for service. The purpose of this qualitative study was threefold: a) to reflect disabled people’s experience of going ...