Akstursþjónusta fatlaðs fólks : hverju þarf að breyta?

Meginmarkmiðið með samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er að stuðla að því að fatlað fólk njóti mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við aðra. Að komast ferða sinna er mikilvægt atriði í því sambandi. Verkefni þetta fjallar um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík og...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Stefán Arnarson 1989-, Guðlaug Hanna Vilhjálmsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25900
Description
Summary:Meginmarkmiðið með samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er að stuðla að því að fatlað fólk njóti mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við aðra. Að komast ferða sinna er mikilvægt atriði í því sambandi. Verkefni þetta fjallar um akstursþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík og felur í sér tvennt; annars vegar greinargerð um akstursþjónustuna og þær breytingar sem gerðar voru nýverið á tilhögun hennar og hins vegar lítinn bækling sem unninn er með hliðsjón af niðurstöðum greinargerðarinnar. Markmið verkefnisins er að draga fram hverju þurfi helst að breyta til að koma betur til móts við þarfir notendur þjónustunnar og koma þeim upplýsingum í aðgengilegt form. Tekið var rýnihópsviðtal við notendur akstursþjónustunnar, til að fá fram þeirra sýn ásamt því að tekið var viðtal við framkvæmdastjóra Strætó bs. Niðurstöðurnar sýna að góð samskipti við bílstjóra aksturþjónustunnar eru efst í huga notendanna og að notendur vilja að bílstjórar bæti sig á því sviði.