Hvað stendur fötluðum ungmennum til boða yfir sumartímann af atvinnu og tómstundum?

Markmið verkefnisins er að kanna hvað stendur fötluðum ungmennum á aldrinum 14-18 ára til boða yfir sumartíman, af atvinnu og tómstundum út frá fjórum sveitarfélögum á Íslandi. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið var spurningalisti sendur til þeirra sem sjá um málefni fatlaðs fólks í Dalvíkurbyggð, á...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ingibjörg Ósk Víkingsdóttir 1991-, Bjarney Anna Sigfúsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25859
Description
Summary:Markmið verkefnisins er að kanna hvað stendur fötluðum ungmennum á aldrinum 14-18 ára til boða yfir sumartíman, af atvinnu og tómstundum út frá fjórum sveitarfélögum á Íslandi. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið var spurningalisti sendur til þeirra sem sjá um málefni fatlaðs fólks í Dalvíkurbyggð, á Ísafirði, á Fljótsdalshéraði og í Grindavík. Tilgangur verkefnisins er ekki að gagnrýna þau sveitarfélög sem bjóða upp á fá möguleika fyrir fötluð ungmenni og hampa þeim sem bjóða upp á mikið úrval. Tilgangurinn er eingöngu að kanna hvað er í boði í hverju sveitarfélagi og hvort fötluð ungmenni hafi val um atvinnu og afþreyingu á við önnur börn. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins byggir á hugmyndafræði um eðlilegt líf og samfélagsþátttöku, mannréttindi, mismunandi skilning á fötlun og umfjöllun um mikilvægi þess að stunda atvinnu og tómstundir. Jafnframt er fjallað um lög og reglugerðir um réttindi fatlaðs fólks. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að öll sveitarfélögin hafi reynt að gera sitt besta í að útvega fötluðum ungmennum vinnu yfir sumartímann. Hins vegar var misjafnt eftir sveitarfélögum hversu fjölbreytt tómstundastarf var í boði. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar þarf víða að bæta aðgengi að vinnu og afþreyingu fyrir fötluð ungmenni. Lykilhugtök: Fötlun, ungmenni, tómstundir, hreyfing, atvinna, Dalvíkurbyggð, Ísafjörður, Grindavík, Fljótsdalshérað.