Æfingahandbók fyrir leikmenn í 5. og 6. flokki kvenna í knattspyrnu

Þetta verkefni er lokaverkefni í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Í þessu verkefni var gerð handbók og fræðilegur inngangur. Handbókin er heimavinnuhandbók sem er ætluð fyrir stelpur á aldrinum átta til tólf ára sem stunda knattspyrnu. Í henni má finna upplýsingar um hvernig þær eiga að setja...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Þóra Elfar 1983-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25556
Description
Summary:Þetta verkefni er lokaverkefni í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Í þessu verkefni var gerð handbók og fræðilegur inngangur. Handbókin er heimavinnuhandbók sem er ætluð fyrir stelpur á aldrinum átta til tólf ára sem stunda knattspyrnu. Í henni má finna upplýsingar um hvernig þær eiga að setja sér markmið, fræðsla um næringu og knattspyrnuæfingar til að gera aukalega heima. Í fræðilega hlutanum er farið yfir mikilvæga hluti hvað varðar þjálfun og einnig hvað þarf að leggja áherslu á hjá þessum aldri í knattspyrnu. Knattspyrna er vinsælasta íþróttin á Íslandi og hefur orðið mikil þróun undanfarið í þjálfun yngri flokka. Áhugi á verkefninu kviknaði eftir að ég byrjaði að þjálfa ungar stelpur í knattspyrnu. Strákar eru meira fyrir það en stelpur að æfa sig aukalega fyrir utan æfingar félagsliðs og það er eitthvað sem ég sá að þurfti að breytast. Þessi handbók er fyrir stelpur sem vilja fræðast um næringu, hvernig á að setja sér auðveld markmið og hvernig á að framkvæma einfaldar æfingar heima.