Hámarkssúrefnisupptaka úrvalsdeildarliðs Víkings í knattspyrnu

Í þessari rannsókn verður mæld hámarkssúrefnisupptaka hjá knattspyrnuliði í úrvalsdeild karla á Íslandi. Liðið er Víkingur. Hópurinn samanstendur af 20 leikmönnum á aldrinum 16-34 ára. Meðalaldur leikmanna er 22 ár. Mælingar voru gerðar 2. og 7. mars 2016. Þegar mælingar voru gerðar voru leikmenn í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Davíð Jónatansson 1988-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25548
Description
Summary:Í þessari rannsókn verður mæld hámarkssúrefnisupptaka hjá knattspyrnuliði í úrvalsdeild karla á Íslandi. Liðið er Víkingur. Hópurinn samanstendur af 20 leikmönnum á aldrinum 16-34 ára. Meðalaldur leikmanna er 22 ár. Mælingar voru gerðar 2. og 7. mars 2016. Þegar mælingar voru gerðar voru leikmenn í miðju undirbúningsferli fyrir keppnistímabilið. Mælingarnar voru gerðar í samstarfi við yfirþjálfara félagsins í þeim tilgangi að sjá hver staðan væri hjá þeim fyrir komandi undirbúning fyrir sumarið. Æfingaáætlun var útbúin með tilliti til þeirra niðurstaðna sem komu út úr mælingunum. Niðurstöður úr mælingum á knattspyrnumönnunum verða bornar saman við aðrar þekktar mælingar sem hafa verið framkvæmdar á svipuðum leikmannahópun annarsstaðar í heiminum í þeim tilgangi að sjá hvar þátttakendur þessarar rannsóknar standa miðað við fyrri rannsóknir. Meðaltal af hámarkssúrefnisupptöku leikamanna sem mældir voru á rannsóknarstofu Íþróttafræðinnar í Háskólanum í Reykjavík var 56,77 VO2 ((ml/kg/mín)). Sá hæsti mældist 66 VO2 ((ml/kg/mín)) og sá lægsti 47,8 ((ml/kg/mín)), en 56,77 VO2 ((ml/kg/mín)) telst ekki nógu gott fyrir úrvalsdeildarlið í knattspyrnu. Hafa þarf í huga að fjórir leikmenn höfðu verið að stíga upp úr flensu, sem kann að hafa haft áhrif á niðurstöðurnar