Hefndarklám : er þörf á sérstöku refsiákvæði ?

Svonefnt hefndarklám, dreifing kynferðislegs myndefnis af einstaklingi án hans samþykkis, er vaxandi vandamál. Í þessari ritgerð er fjallað um ýmsar hliðar málsins. Verknaðurinn er skilgreindur, metnar afleiðingar hans á þolendur og reynt að greina helstu ástæður gerenda. Höfundur framkvæmdi eigindl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Líney Dan Gunnarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25532
Description
Summary:Svonefnt hefndarklám, dreifing kynferðislegs myndefnis af einstaklingi án hans samþykkis, er vaxandi vandamál. Í þessari ritgerð er fjallað um ýmsar hliðar málsins. Verknaðurinn er skilgreindur, metnar afleiðingar hans á þolendur og reynt að greina helstu ástæður gerenda. Höfundur framkvæmdi eigindlega rannsókn með viðtölum við þolendur hefndarkláms hérlendis, þar sem fram koma alvarlegar afleiðingar brotanna. Þá er fjallað um dómaframkvæmd, en fjórir dómar hafa fallið í hefndarklámsmálum hérlendis. Skoðað er með hvaða hætti dómstólar hafa heimfært verknaðinn undir refsiákvæði almennra hegningarlaga, þá einkum 209. gr. og 233. gr. b. laganna. Einnig er greint fyrirliggjandi frumvarp til laga, þar sem lagt er til að hefndarklám verði gert að sérstöku refsiákvæði í hegningarlögum. Ennfremur er að finna í ritgerðinni ítarlega yfirferð á erlendri löggjöf á þessu sviði, þá ekki síst í Bandaríkjunum. Opinberri umræðu um þessi mál er gerð skil, einkum framlagi íslenskra fjölmiðla. Leitast er við að svara spurningunni hvort þörf sé á sérstöku refsiákvæði um hefndarklám í íslenskri löggjöf. Fræðimönnum og sérfræðingum ber ekki saman um það. Hvorki þörfina né efni slíkra sértækra úrræða í íslenskri löggjöf. Annars vegar eru þau sjónarmið uppi að gildandi lög veiti þolendum brotanna ekki nægilega réttarvernd. Hins vegar er því haldið fram að Hæstiréttur hafi nú þegar með nýlegum dómafordæmum sýnt fram á að á þessum brotum sé tekið með viðhlítandi hætti. Um þessi álitamál og önnur tengd er fjallað með ítarlegum og fræðilegum hætti. Revenge porn, the distribution of photographs or footage of a sexual nature without the permission of the persons in question, is of growing concern. This essay looks at this topic from different angles. The act itself is defined, the effect it has on the victim is examined as well as the perpetrator´s main reasons for committing the act. The author performed a qualitative investigation by interviewing victims of revenge porn here in Iceland, which revealed the severity of the consequences of ...