Quis custodiet ipsos custodes? Hverjir eiga að gæta varðanna? : eftirlit með starfsháttum og starfsemi lögreglu: Gagnrýni og mögulegar úrbætur

Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir því eftirliti sem haft er með störfum lögreglu á Íslandi. Eftirlitið hefur verið til umræðu á undanförnum misserum og sætir fyrirkomulag þess, þegar ritgerð þessi er skrifuð, gagnrýni. Þá hefur endurskoðun á eftirlitinu verið sett í gang og lagðar ha...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Emilía Ýr Jónsdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25516
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir því eftirliti sem haft er með störfum lögreglu á Íslandi. Eftirlitið hefur verið til umræðu á undanförnum misserum og sætir fyrirkomulag þess, þegar ritgerð þessi er skrifuð, gagnrýni. Þá hefur endurskoðun á eftirlitinu verið sett í gang og lagðar hafa verið fram nokkrar tillögur til úrbóta, sem á einn eða annan hátt er ætlað að efla eftirlitið. Í ljósi þeirrar gagnrýni sem verið hefur uppi á gildandi fyrirkomulagi verður í ritgerð þessari leitast við að svara þeirri spurningu hvar tilefni sé til úrbóta og hvaða leið sé vænlegust í þeim efnum. Í því sambandi verður ekki hjá því komist að beina sjónum að þeim alþjóðlegu mannréttindaskuldbindingum sem íslenska ríkið hefur undirgengist og snúa að þessu eftirliti. Þá verður litið til tillagna alþjóðastofnana í þessum málaflokki og þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í nágrannaríkjum Íslands undanfarin ár. Að lokum verða síðan lagðar fram tillögur til úrbóta. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að vænlegast sé að haga eftirliti með störfum lögreglu á Íslandi í samræmi við þær tillögur sem alþjóðastofnanir á vettvangi Evrópuráðsins og Sameinuðu þjóðanna hafa sett fram, til þess að treysta stöðu borgaranna við meðferð kvartana og kærumála á hendur lögreglu. Ásamt meðferð mála í þeim tilvikum þegar aðgerðir eða aðferðir lögreglu leiða til dauðsfalla eða stórfellds líkamstjóns meðan sá sem fyrir slíku verður var í umsjón lögreglu, óháð því hvort uppi er grunur um refsivert brot. Telur höfundur að breytingar á eftirlitinu til samræmis við tillögur alþjóðastofnana séu best til þess fallnar að mæta alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum og að auka traust almennings á störfum og eftirliti með lögreglu. Þannig fái borgararnir hlutlausa meðferð sjálfstæðs og óháðs aðila hverju sinni, í málum sem varða samskipti þeirra við lögreglu. The objective of this thesis is to explain the surveillance system regarding police work and operations in Iceland. Lately, the system has been discussed and criticized. When this thesis ...