Hvers vegna styður Ísland þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi og standast gagnaðgerðir Rússlands gegn Íslandi þjóðarétt?

Í þessari ritgerð er skoðað hvers vegna Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi og hvort að gagnaðgerðir Rússlands gegn Íslandi standist Þjóðarétt. Meginástæða þvingunaraðgerðanna er sprottin af innrás Rússa í Úkraínu, innlimun þeirra á Krímskaga og stuðningi þeirr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helen Hergeirsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25501
Description
Summary:Í þessari ritgerð er skoðað hvers vegna Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi og hvort að gagnaðgerðir Rússlands gegn Íslandi standist Þjóðarétt. Meginástæða þvingunaraðgerðanna er sprottin af innrás Rússa í Úkraínu, innlimun þeirra á Krímskaga og stuðningi þeirra við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Til að leitast við að svara hvers vegna umræddar aðgerðir Rússa leiddu til samstöðu hinna vestrænu ríkja um að grípa til þvingunaraðgerða er gerð ítarlega grein fyrir nokkrum grundvallarreglum þjóðaréttar sem meginmáli skipta. Umfjöllun grundvallarreglnanna er rakin með hliðsjón af háttsemi Rússa og varða þær helst skyldu til að virða friðhelgi landamæra og bann við beitingu vopnavalds. Þá verður einnig fjallað um skyldu aðila til að leysa úr málum sínum á friðsamlegan hátt, þjóðréttarsamninga og skuldbindingargildi þeirra. Rakin eru skilyrði þjóðréttarbrota og hvaða afleiðingar þau kunna að hafa í för með sér. Sérstakur kafli er um þvingunaraðgerðir en þar er að mestu leyti fjallað um aðgerðir Evrópusambandsins gagnvart Rússum og ákvörðun Íslands um að styðja þær aðgerðir. Einnig er komið inn á innflutningsbann Rússa á matvælum frá þeim ríkjum sem staðið hafa að þvingunaraðgerðunum en er sú umfjöllun eingöngu metin í tengslum við þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins og Íslands. Þá er fjallað heimild ríkja sem orðið hafa fyrir þjóðréttarbroti til að grípa til gagnaðgerða. Metið er hvort að skilyrði gagnaðgerða hafi verið uppfyllt varðandi þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins annars vegar og varðandi innflutningsbann Rússa gegn Íslandi hins vegar. Niðurstöður benda til að þátttaka Íslands í þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi helgast af því að Rússar hafa þverbrotið fjölda alþjóðasamninga og stenst sú háttsemi hvorki grundvallarreglur þjóðaréttar né utanríkisstefnu Íslands. Þá verða gagnaðgerðir Rússlands gegn Íslandi taldar úr öllu samræmi við skilyrðum um beitingu lögmætra gagnaðgerða og stenst þar með ekki kröfur þjóðaréttar. The aim of this thesis is to examine why Iceland ...