Það er eins og það lifni eitthvað inn í mér : tónlistariðkun með fólki með Alzheimer og aðrar heilabilanir

Í þessu meistaraverkefni eru skoðaðar nokkrar leiðir til tónlistariðkunar fyrir fólk með Alzheimersjúkdóminn og aðrar heilabilanir. Með hækkandi aldri landsmanna fjölgar þeim sem fá Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma. Enn sem komið er, hafa hvorki fundist lyf við þessum sjúkdómum né lækning á þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnea Tómasdóttir 1969-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25469
Description
Summary:Í þessu meistaraverkefni eru skoðaðar nokkrar leiðir til tónlistariðkunar fyrir fólk með Alzheimersjúkdóminn og aðrar heilabilanir. Með hækkandi aldri landsmanna fjölgar þeim sem fá Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma. Enn sem komið er, hafa hvorki fundist lyf við þessum sjúkdómum né lækning á þeim, þannig að augun beinast að umönnunarúrræðum og öðrum meðferðarúrræðum. Músíkmeðferð er ein tegund meðferðar sem gefið hefur góðan árangur hjá heilabiluðum einstaklingum. Einnig er persónumiðuð umönnun að ryðja sér til rúms þar sem lífssaga og persónuleiki manneskjunnar er í forgrunni. Rannsóknir sýna að söngur bætir lífsgæði fólks. Bæði fjöldasöngur og söngur maður á mann. Þá skiptir ekki máli hver syngur, það geta verið söngvarar, starfsfólk eða aðstandendur. Höfundur tók þátt í tveimur mismunandi tónlistarsmiðjum þar sem aðferðir Music for Life voru notaðar. Önnur heitir Turtle song i Lundúnum en hin var í dagþjálfuninni Fríðuhúsi í Reykjavík. Tónlistarsmiðjurnar byggja á tónlistarspuna þátttakenda. Einnig skipulagði höfundur tónlistarstundir fyrir fólk sem sækir dagþjálfunina í Hlíðabæ í Reykjavík. Þar var leitað í brunn fyrri kunnáttu og sungin lög sem fólkinu var tamt frá barnæsku fram til dagsins í dag. Niðurstöður þessa verkefnis eru þær að tónlist í öllu formi hefur mikil og góð áhrif á daglegt líf fólks með heilabilun. Einnig hefur þátttaka í lifandi sköpunarferli í gegnum tónlist áhrif á mál, samskipti, sjálfsmynd, öryggi og almenn lífsgæði, auk þess sem persónan og manneskjan á bakvið sjúkdóminn fær tækifæri til að skína. This MA thesis investigates several ways of doing music with people with Alzheimer’s disease and other forms of dementia. As Icelanders are growing older, the number of people suffering from Alzheimer’s, and other forms of dementia, will grow as well. There is yet no medicine or cure for these diseases, so there is a growing interest in other methods for caring and therapy. Music therapy is a form of caring that has proved to be quite successful in the care for people with dementia. ...