Að breyta lífsstíl með áhugahvetjandi samtölum : hafa áhugahvetjandi samtöl heilsueflandi áhrif á einstaklinga sem eru í áhættu að þróa með sér sykursýki II?

Verkefnið er lokað til 3.6.2019. Sykursýki II og offita hefur aukist hér á landi og afleiðingar þessara sjúkdóma geta orðið mikil byrgði fyrir samfélagið. Með auknu forvarnarstarfi í formi fræðslu og stuðnings geta hjúkrunarfræðingar komið í veg fyrir og/eða minnkað áhættuna á sykursýki II. Rannsókn...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Áslaug Björnsdóttir 1974-, Dagbjört Helga Guðmundsdóttir 1974-, Halla Arnfríður Grétarsdóttir 1969-, Svanbjörg Andrea Halldórsdóttir 1973-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25262
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 3.6.2019. Sykursýki II og offita hefur aukist hér á landi og afleiðingar þessara sjúkdóma geta orðið mikil byrgði fyrir samfélagið. Með auknu forvarnarstarfi í formi fræðslu og stuðnings geta hjúkrunarfræðingar komið í veg fyrir og/eða minnkað áhættuna á sykursýki II. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Í framskyggðri, slembaðri íhlutunarrannsókn verður kannað hvort inngrip hjúkrunarfræðinga í formi áhugahvetjandi samtala hafi heilsueflandi áhrif á einstaklinga sem eru í áhættu á að fá sykursýki II á næstu 10 árum samkvæmt „The Finnish Type 2 Diabetes Risk Assesment Form“ (FINDRISK) matstækinu. Þátttakendur í rannsókninni verða á aldrinum 18-70 ára, starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem skora > 9 á FINDRISK matstækinu. Samanburðarhópurinn fær mælingu og fræðslu um hreyfingu og matarræði í upphafi rannsóknar. Í lok rannsóknar verða báðir hóparnir svo mældir á sama hátt og gert var í upphafi rannsóknar. Höfundar álykta að með markvissri skimun fyrir áhættuþáttum sykursýki II og aukinni notkun áhugahvetjandi samtala væri hægt að minnka og koma í veg fyrir fylgikvilla. Með því væri hægt að sporna gegn þessari gífurlegu aukningu á tilfellum sykursýki II. Lykilhugtök: Áhugahvetjandi samtöl, lífsstíll, sykursýki II, heilsuefling, valdefling og lífsstílsbreyting. Diabetes and obesity in Iceland have increased and the effects of these diseases could have a negative impact on health and society. Nurses have the opportunity to have a positive impact on the development of the disease through preventive measures. This research proposal is a BSc thesis in nursing at the University of Akureyri. A prospective, randomized, controlled trial will be used to test the impact of nurses health promotion and motivational interviewing, on the risk of developing type II diabetes within the next 10 years, according to “The Finnish Type 2 Diabetes Risk Assessment Form” (FINDRISK). Participants will be between 18 to 70 ...