Framhaldsskólamenntun og vinnumarkaðurinn : viðhorf nemenda FSN

Verkefnið er lokað til 31.5.2030. Menntun er mikilvæg hverjum einstaklingi. Nær allir nemendur sem útskrifast úr grunnskólum hér á landi innrita sig í framhaldsskóla, en þrátt fyrir það er brotthvarf úr framhaldsskólum tiltölulega hátt miðað við önnur lönd. Menntakerfið á Íslandi er þekkt fyrir að v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Bryndís Þórisdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25214
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.5.2030. Menntun er mikilvæg hverjum einstaklingi. Nær allir nemendur sem útskrifast úr grunnskólum hér á landi innrita sig í framhaldsskóla, en þrátt fyrir það er brotthvarf úr framhaldsskólum tiltölulega hátt miðað við önnur lönd. Menntakerfið á Íslandi er þekkt fyrir að vera opið og sveigjanlegt sem gerir það að verkum að auðvelt er fyrir ungt fólk að hætta í námi, fara út á vinnumarkaðinn og snúa síðan aftur í nám seinna á lífsleiðinni. Atvinnuþátttaka ungs fólks hér á landi er mikil og vinna íslenskir námsmenn mikið. Fyrri rannsóknir sýna fram á að menntun hefur mikil áhrif á líf einstaklinga sem og samfélagið. Hún hefur m.a. áhrif á heilsu einstaklinga og stöðu þeirra á vinnumarkaðnum. Einstaklingar með framhaldsmenntun eru t.d. ólíklegri til að verða atvinnulausir og hafa að meðaltali hærri laun þrátt fyrir styttri starfsævi en þeir sem fóru ekki í framhaldsnám. Rannsókn þessi var megindleg. Það var sendur spurningalisti á alla nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga 18 ára og eldri, og einnig var spurningalisti settur á inn Facebook hóp fyrir nemendur sem höfðu útskrifast úr skólanum. Tilgangur þessarar rannsóknar var m.a. að kanna hvort nám á framhaldsskólastigi í FSN hefði áhrif á stöðu fólks á vinnumarkaðnum. Við greiningu gagnanna voru forritin Excel, SPSS og Survey Monkey notuð. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að lítill munur væri á stöðu einstaklinga á vinnumarkaðnum, hvort sem þeir hefðu lokið námi á framhaldsskólastigi, íhugað að hætta námi við FSN eða hættu námi við skólann. Þessar niðurstöður stangast á við niðurstöður fyrri rannsókna og má ætla að fjöldi þátttakenda í úrtakinu hafi haft áhrif á niðurstöðurnar. Education is important for every individual. Almost all students who graduate from primary school in Iceland enroll in upper secondary school but despite that the drop out rate in upper secondary schools is relatively high compared to other countries. The education system in Iceland is known to be open and flexible wich makes it easy for young people ...