Einn fyrir alla og allir fyrir einn : skóli án aðgreiningar

Menntastefna okkar Íslendinga gengur undir heitinu skóli án aðgreiningar og er markmið hennar að allir nemendur hafi sama rétt til þess að stunda nám í sínum heimaskóla óháð andlegu og líkamlegu atgervi. Það má því segja að stefnan setji skólum, skólastjórnendum og kennurum kröfur um að allir séu ti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elma Rún Grétarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25205
Description
Summary:Menntastefna okkar Íslendinga gengur undir heitinu skóli án aðgreiningar og er markmið hennar að allir nemendur hafi sama rétt til þess að stunda nám í sínum heimaskóla óháð andlegu og líkamlegu atgervi. Það má því segja að stefnan setji skólum, skólastjórnendum og kennurum kröfur um að allir séu tilbúnir til þess að taka við öllum nemendum og veita þeim menntun við hæfi hvers og eins. Stefnan á upptök sín að rekja til foreldra fatlaðra barna sem kröfðust þess að þeirra börn nytu sama réttar og önnur. Í framhaldi af því var stefnan lögfest hér á landi með grunnskólalögum árið 2008. Stefnan hefur mikið verið í umræðunni síðustu ár og eru skiptar skoðanir meðal fólks um gagnsemi hennar. Í verkinu set ég fram rannsóknarspurningu og skrifa um stefnuna út frá henni en spurningin hljómar svo: Er skóli án aðgreiningar skóli fyrir alla? Ef svo er ekki, fyrir hverja er hann þá og fyrir hverja ekki? Þá verður einnig fjallað um hvernig stefnan er skilgreind, hvernig hún er í framkvæmd og hvort markmið hennar séu raunhæf. Kennarinn er ávallt í brennidepli í stefnunni og fjallað er um hvernig hann skal haga vinnu sinni samkvæmt henni. Þegar öllu er á botninn hvolft kemur í ljós að stefnan, skóli án aðgreiningar, hefur bæði í för með sér kosti og galla. Niðurstöðurnar leiða í ljós að sveigjanleiki í stefnunni er nauðsynlegur þrátt fyrir að hún skuli vera unnin eftir ákveðnu sniði. Iceland's education policy goes under the name Inclusive School as an objective that all students have the same right to attend their local school regardless of their mental and physical abilities. It can be said that the policy demands of schools, principals and teachers that all are willing to accept all students and provide them with appropriate education. The policy originates thanks to parents of children with disabilities who insisted that their children should enjoy the same rights as any other. Subsequently, the policy was enacted in Iceland with the 2008 Compulsory Education. The policy has been much debated in recent years and there are ...