Virkar Hugleikur? : þróunarverkefni um samræður til náms

Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig þróunarverkefnið Hugleikur – samræður til náms hefur tekist og kanna viðhorf kennara og nemenda til verkefnisins. Rannsóknarspurningin er: Virkar Hugleikur? Kveikjuna að þessu verkefni má rekja til vinnustofu Hugleiks í Háskólanum á Akureyri haus...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Gunnarsdóttir 1979-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25198
Description
Summary:Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig þróunarverkefnið Hugleikur – samræður til náms hefur tekist og kanna viðhorf kennara og nemenda til verkefnisins. Rannsóknarspurningin er: Virkar Hugleikur? Kveikjuna að þessu verkefni má rekja til vinnustofu Hugleiks í Háskólanum á Akureyri haustið 2015. Hugleikur er heiti á þróunarverkefni sem kennaradeild Háskólans á Akureyri og miðstöð skólaþróunar við sama skóla vinna að í sameiningu. Verkefninu er ætlað að rannsaka áhrif samræðu á nám og kennslu og er ætlunin að búa til námskeið í samræðuaðferðum handa kennurum á öllum skólastigum. Eftir að hafa fengið að fylgjast með í vinnustofu Hugleiks vildi ég vita meira. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem settir voru saman rýnihópar úr röðum nemenda og kennara á öllum skólastigum. Alls voru rýnihóparnir sjö talsins, tveir kennarahópar og fimm nemendahópar og voru þrír til níu þátttakendur í hverjum rýnihópi. Viðtölin voru afrituð orðrétt og þau síðan þemagreind. Meginniðurstöður rannsóknarinnar sýna að kennarar og nemendur eru almennt ánægðir með Hugleik. Fannst bæði kennurum og nemendum þeir hafa lært mikið af samræðum í námi. Töldu nemendur að með samræðum haldi þeir frekar athygli í kennslustundum og séu betri í að setja sig í spor annarra. Kennarar merktu jákvæðan mun á nemendum sínum og töldu þá meðal annars betri hlustendur eftir Hugleik. Þá fundu þeir mun á sjálfum sér á jákvæðan hátt og fannst þeir á vissan hátt betri kennarar. Engu að síður töldu þeir vanta upp á efni og höfðu orð á því að setja þyrfti upp góðan hugmyndabanka sem auðvelt væri að vinna í. Einnig vildu kennarar meina að samræðuaðferðin sé góð leið til að vinna með þá þætti aðalnámskrár sem snúa að gagnrýninni hugsun. Enn fremur virðist samræðuaðferðin henta vel fyrir þá nemendur sem standa höllum fæti eða eru með einhvers konar greiningar. The main purpose of this research was to take a closer look at how the developmental project Hugleikur – samræður til náms, has succeeded and take a look at what teachers and students think of this ...