„Svo erum við náttúrulega með Gísla gamla Súrsson“ : læsi og lestrarkennsla í unglingadeildum grunnskóla

Markmið rannsóknarinnar var að beina sjónum að þekkingu og reynslu reyndra íslenskukennara af læsi og lestrarkennslu unglinga. Skoðað var hvaða leiðir kennararnir fara til að kenna unglingum lestur og efla læsi þeirra. Aðferðin við rannsóknina var eigindleg og fólst í viðtölum við átta reynda íslens...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna María Jónsdóttir 1965-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25181
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að beina sjónum að þekkingu og reynslu reyndra íslenskukennara af læsi og lestrarkennslu unglinga. Skoðað var hvaða leiðir kennararnir fara til að kenna unglingum lestur og efla læsi þeirra. Aðferðin við rannsóknina var eigindleg og fólst í viðtölum við átta reynda íslenskukennara í unglingadeildum í átta grunnskólum í Reykjavík. Viðtölin voru tekin í nóvember og desember 2015 og unnið var úr gögnum jafnóðum. Í rannsókninni var leitast við að fá fram þær leiðir sem íslenskukennarar hafa mesta trú á til að kenna unglingum lestur og efla læsi, hvaða leiðir þeir fara og hvernig hægt sé að gera betur. Litið var til bakgrunns kennaranna og menntunar með tilliti til íslensku- og lestrarkennslu, stefnu skólanna í lestri og lestrarkennslu, samvinnu kennara, námsefnis og námsmats og þeirra aðferða sem þeir nota til að kenna lestur og efla læsi. Meginniðurstöður eru að allir viðmælendur hafa áhyggjur af minni lestrarfærni nemenda sinna og telja að þeir tapi hefðbundnum orðaforða vegna þess að þeir lesa sjaldan afþreyingarbækur og tala minna við fullorðna en áður. Þeir lesa samt mjög mikið og hafa samskipti í gegnum tölvur og snjallsíma en orðaforði þeirra er annar og virðist ekki nýtast til að auka eða bæta lesskilning. Lestrarkennsla unglinganna felst í að kveikja áhuga á bókum, hvetja þá til lesturs, veita tíma til yndislesturs í skólanum og leggja fyrir verkefni sem krefjast lesturs og ritunar og verkefna sem eiga að auka lesskilning. Kennararnir lesa mikið fyrir nemendur í bókmenntatímum og fá þá til að lesa sjálfa með því að leggja fyrir þá verkefni og próf og gefa einkunnir fyrir. Kennararnir muna ekki eftir að áhersla hafi verið lögð á læsi og lestrarkennslu unglinga í kennaranáminu og telja áríðandi að foreldrar og heimilin axli ábyrgð á lestri barna. The purpose of this paper was to look at the knowledge and experience of long-standing teachers of literacy and reading instruction for adolescent: how they teach them to read and how they reinforce literacy was examined. The method was ...