Betur sjá augu en auga : eru samskipti mikilvæg í breytingum innan hjúkrunarheimila landsins?

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun starfsmanna á breytingastjórnun innan hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu. Þá er sérstaklega litið til þess hvort samskipti séu mikilvægur hluti í breytingarferli og hvernig starfsmenn upplifa samskipti í þeim breytingum sem þeir hafa tekið þátt í. Í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Íris Dögg Guðjónsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25158
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun starfsmanna á breytingastjórnun innan hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu. Þá er sérstaklega litið til þess hvort samskipti séu mikilvægur hluti í breytingarferli og hvernig starfsmenn upplifa samskipti í þeim breytingum sem þeir hafa tekið þátt í. Í þessari rannsókn er meðal annars horft til breytinga á stjórnun innan hjúkrunarheimila, á húsnæði, starfsmannahaldi eða breyttum starfsháttum. Sett var fram ein rannsóknarspurning: „Eru samskipti mikilvæg í breytingum innan hjúkrunarheimila landsins?“ Rætt var við sex starfsmenn hjúkrunarheimila sem gengið höfðu í gegnum breytingar á sínum vinnustöðum. Einstaklingsviðtöl voru tekin við þátttakendur sem síðan voru greind með túlkandi greiningu og sett niður í þemu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að starfsmenn upplifðu skort á samskiptum og upplýsingarflæði. Þeir hefðu viljað taka meiri þátt í breytingarferlinu og vera þannig betur undir breytingarnar búnir. Þá upplifðu viðmælendur vanlíðan og aukið álag í kjölfar breytinga, sem þeir röktu til slakrar undirbúningsvinnu við innleiðingu breytinganna af hálfu yfirmanna. Niðurstöður benda til að frekari þörf sé á rannsóknum á þessu sviði. Slíkar rannsóknir geta haft hagnýtt gildi fyrir yfirmenn hjúkrunarheimila sem stefna á breytingar The purpose of this research is to explore the employees perception of change management within nursing homes in the capital area of Iceland. With special emphasize on whether communication is an important part of the change management process and how employees have perceived the level of communcation in the changes they have been involved with. The research will among other things look at changes in management, housing, staff and practices within nurshing homes. The research question was: “Is communication important during changes within nursing homes in Iceland?” During the research six employees of nursing homes were interviewed, all of whom had experienced changes in their workplace. Individual qualitative interviews were done with ...