Þolmörk náttúru vegna ferðaþjónustu á Suðurlandi

Markmið þessa verkefnis er að skoða hver eða hvort áhrif aukins ferðamannastraums til landsins á náttúruna gæti hjá Geysir, Gullfoss, Þingvöllum og Seljalandsfoss. Einnig verður kannað hvort haldbær áætlun sé fyrir hendi vegna þessarar fjölgunar á svæðin og hvort náttúran mikilvægur hluti af skipula...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Eggertsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25149
Description
Summary:Markmið þessa verkefnis er að skoða hver eða hvort áhrif aukins ferðamannastraums til landsins á náttúruna gæti hjá Geysir, Gullfoss, Þingvöllum og Seljalandsfoss. Einnig verður kannað hvort haldbær áætlun sé fyrir hendi vegna þessarar fjölgunar á svæðin og hvort náttúran mikilvægur hluti af skipulagi. Verkefnið er ekki byggt á viðtalsrannsókn en tekin verða viðtöl við aðila sem sjá um staðina, þekkja vel til og geta þá svarað spurningum sem snúast um náttúru staðanna og þróunina sem á sér stað. Fyrst er aðeins skoðað hvað ferðaþjónusta er og hvernig hún hefur verið að þróast. Það er merkilegt að fylgjast með þessari hröðu þróun sem hefur átt sér stað síðustu ár í ferðaþjónustu í heiminum. Það er á mörgum stöðum að hafa miklar tekjur af þessu sem og er þetta mikil kynning fyrir land og þjóð viðkomandi áfangastaðar. En það er ekki alls ekki allt jákvætt við þessa þróun og gleymist oft það mikilvægasta sem við höfum, náttúran, þar sem hún getur ekki sagt sína skoðun þá megum við ekki gleyma hversu viðkvæm hún getur verið. Það er vinsælast að ferðast um Suðurlandið meðal ferðamanna og því þarf að huga vel að náttúrunni á þeim áfangastöðum sem eiga í hættu að eyðileggjast. Það verða því skoðaðir vinsælir áfangastaðir á Suðurlandi sem er undir álagi vegna ferðamanna og verður einnig athuga hvort einhver áætlun sé fyrir hendi varðandi þennan fjölda. Helstu niðurstöður eru að þolmörkum er náð á Geysisvæðinu og verður því að hefja framkvæmdir sem fyrst þó svo ekki nema að grípa til skammtímalausna þar til að framkvæmdir hefjist vegna deiliskipulags. Miklar framkvæmdir hafa verið hjá Gullfoss og Þingvöllum þó svo enn sé margt sem þurfi að bæta. Seljalandsfoss er svæði sem náttúran hefur verið mikill hluti af skipulagi svæðisins, að breyta henni ekki um of svo það sé ekki of manngert. En öll svæðin eru með skipulag sem náttúran er hluti af þó svo það mætti leggja frekari áherslu á og athuga hvað sé best fyrir náttúruna.