Summary: | Ritgerðin er skrifuð sem hluti af tæknifræðinámi á vegum Rafmagns- og tölvufræðideildar Háskóla Íslands á vettvangi Keilis á Ásbrú. Námslínan heitir Orku- og umhverfistæknifræði Markmið þessa verkefnis er að skoða varmaendurvinnslu og notkunarmöguleika frá kísilveri United Silicon sem er verið að reisa í Helguvík á Íslandi. Aðaláherslan er á gufuframleiðslu frá afgasinu en aðrir notkunarmöguleikar eru einnig skoðaðir. Orkugreining er framkvæmd og byggist hún á fræðilegum og áætluðum gögnum fyrir ofninum sem verið er að reisa hjá United Silicon. Greiningin sýnir að töluvert magn orkunnar sem notuð er í framleiðslunni verður að varmatapi. Áætlað orkutap í afgasinu er um 34,3MW af þeim 67,3MW sem lagt er inn í framleiðsluna og aðeins um 21,5MW skilar sér sem efnaorka í framleiðsluafurðinni. Varmaskiptar eru skoðaðir fyrir gufu framleiðslu frá afgasinu þar sem endurnýtanleg orka reiknast sem um 27MW frá afgasinu. Þrjú dæmi um mögulega iðnaði sem gætu nýtt varmaorkuna eru skoðuð og framleiðslugeta á gufu fyrir þá iðnaði áætluð út frá gæðaflokk gufunnar sem hver iðnaður krefst. Niðurstöður sýna góða framleiðslugetu á gufu fyrir iðnaðina. Gufuframleiðsla frá orkutapinu gæti mætt eftirspurn á varmaorku fyrir klór verksmiðju með framleiðslugetu uppá 36.000 tonnum á ári, glýkól verksmiðju með framleiðslugetu uppá 30.000 tonnum á ári og urea áburðarverksmiðju með allt að 370.000 tonnum á ári í framleiðslugetu. Aðrir nýtingarmöguleikar á varmatapinu eru frá kælivatninu. Þetta varmatap gæti verið nýtt í ýmsan iðnað sem þarfnast varmaorku með lágu hitastigi. Slíkir iðnaðir geta verið gróðurhús eða fiskeldi. Annar möguleiki væri að nota varmann í kælivatninu sem forhitara fyrir inntaksvatn í varmaskipti til þess að auka nýtni á honum. The objective of this study is to consider waste heat recovery and utilization possibilities at a silicon metal plant being erected in Helguvík, Iceland. The main focus is put on steam production from the off-gas but other utilizations are also considered. An energy analysis is ...
|