Byggingararfur og þróun áfangastaða í ferðaþjónustu : Kópavogur

Eftir að til stóð að rífa Menntaskólann í Reykjavík árið 1950, varð vitundarvaking meðal Íslendinga varðandi byggingararf. Húsafriðunarsjóður var stofnaður árið 1975, sem veitir styrki til viðhalds og enduruppbyggingu eldri húsa. Í fræðilegum hluta ritgerðarinnar er fjallað um áfangastaði með tillit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Reynir Jónasson 1971-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25066
Description
Summary:Eftir að til stóð að rífa Menntaskólann í Reykjavík árið 1950, varð vitundarvaking meðal Íslendinga varðandi byggingararf. Húsafriðunarsjóður var stofnaður árið 1975, sem veitir styrki til viðhalds og enduruppbyggingu eldri húsa. Í fræðilegum hluta ritgerðarinnar er fjallað um áfangastaði með tilliti til markaðssetningar í ferðaþjónustu, sérstaklega í þéttbýli. Fyrirliggjandi þekking á grunnþáttum í uppbyggingu áfangastaða er borin saman við aðstæður í Kópavogi. Þá er fjallað um menningararf og hvernig hægt er að nýta byggingararf sem aðdráttarafl í ferðaþjónustu. Sú umræða er tengd sögu og byggingararfi Kópavogs. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina stöðu markaðsmála og stefnu bæjaryfirvalda í Kópavogi í ferðamálum. Þá er markmiðið að skoða með hvaða hætti megi nýta þann byggingararf sem liggur í Hressingarhælinu og gamla Kópavogsbænum, í ferðaþjónustu í Kópavogi. Helstu niðurstöður eru þær að ekki er til ferðamálastefna fyrir Kópavogsbæ, þar er engin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og stefna í markaðsmálum liggur ekki ljós fyrir. Ímynd Kópavogs tengist helst menningu og listum, en ímynd bæjarins sem áfangastaður í ferðaþjónustu er veik. Nauðsynlegt er fyrir Kópavogsbæ að hefja vinnu við stefnu í ferðamálum. Þá þarf að efla markaðsstarfið með því að opna vefsíðu fyrir ferðamenn og upplýsingamiðstöð. Auka þarf þátt Markaðsstofu Kópavogs í kynningarmálum bæjarins og hugsanlega má staðsetja upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Hressingarhælinu eða gamla Kópavogsbænum. Lykilhugtök: Áfangastaður, markaðssetning, menningararfur, byggingararfur í ferðaþjónustu, Kópavogur. When Menntaskólinn (College) in Reykjavík was intended to be demolished in the year 1950, it raised huge awareness and was really a wake-up call for the nation regarding Icelandic building heritage. In the year 1975, the institute Húsafriðunarsjóður (Architectural heritage Fund) was established with the purpose to provide funding for the maintenance and reconstructions of old buildings. In the theoretical part of the essay there are discussions ...