Uppbygging vetrarferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ : samgöngur, veðurfar og afþreying

Hið hefðbundna ferðamannatímabil hefur lengst og er vetrarferðamennska að vaxa á Íslandi með hverju árinu. Svo virðist vera að ein af ástæðum þess að aukningin færist ekki meira um landið séu samgöngur. Ísafjarðarbær er ekki undanskilinn því, en landfræðileg staðsetning hans gerir það að verkum að e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnea Garðarsdóttir 1980-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25064
Description
Summary:Hið hefðbundna ferðamannatímabil hefur lengst og er vetrarferðamennska að vaxa á Íslandi með hverju árinu. Svo virðist vera að ein af ástæðum þess að aukningin færist ekki meira um landið séu samgöngur. Ísafjarðarbær er ekki undanskilinn því, en landfræðileg staðsetning hans gerir það að verkum að ekki er alltaf fært flug eða landleiðina yfir vetrartímann. Markmið þessa verkefnis var að sjá hverjar framtíðahorfur Ísafjarðarbæjar eru í uppbyggingu vetrarferðaþjónustu út frá samgöngum, veðurfari og afþreyingu. Viðfangsefnið var nálgast út frá viðhorfi ferðmannsins og tölulegar staðreyndir um samgöngur. Tekin voru viðtöl við 11 erlenda ferðamenn á svæðinu. Tölur um ófærð frá Flugfélagi Íslands og Vegagerðinni voru skoðaðar. Bornar voru saman tölur um ófærð frá Steingrímsfjarðarheiði og Öxnadalsheiði. Helstu niðurstöður voru að uppbyggin er í gangi í vetrarferðaþjónustu í Ísafjarðarbæ og framtíðahorfur góðar þó svo að veðrið stjórni miklu. Hinsvegar velta framtíðahorfurnar mikið á hvernig framvinda verður gagnvart ákvarðanatöku stjórnvalda í samgöngum. Þar kemur inn mikilvægi Dýrafjarðarganga og uppbyggingu Dynjandisheiði en í dag er einungis ein leið fær landleiðina að vetrarlagi inn í sveitarfélagið. Lykilorð: Áfangastaður – vetrarferðaþjónusta – samgöngur – veðurfar - afþreying The high season in tourism is getting longer and winter travel is growing in Iceland every year. It looks like transportation is the cause of the increase in tourism not spreading equally in communities around the country. Ísafjarðarbær being one of them, the community’s geographical location makes it sometimes hard to reach both trough air and road transportation during the winter time. The aim of this research is to see if there is any future in developing and building winter tourism in Ísafjarðarbæ regarding, transportation, weather and recreation. The subject was to see the angle from a tourist perspective and look at numerical facts about transportation. Interviews were conducted with 11 tourists in the area. Numbers for ...