Hjúkrunarfræðingar/bráðatæknar : hver er ávinningur af því að mennta hjúkrunarfræðinga sem bráðatækna?

Í þessu verkefni var lagt af stað með þá hugmynd að leggja mat á hvort ávinningur væri fólginn í því að gefa hjúkrunarfræðingum kost á að bæta sjúkraflutninganámi við menntun sína til að öðlast réttindi sem bráðatæknar. Það væri mikilvægt sér í lagi í dreifbýlinu þar sem menntunarstig sjúkraflutning...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sveinbjörn Dúason 1963-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25044
Description
Summary:Í þessu verkefni var lagt af stað með þá hugmynd að leggja mat á hvort ávinningur væri fólginn í því að gefa hjúkrunarfræðingum kost á að bæta sjúkraflutninganámi við menntun sína til að öðlast réttindi sem bráðatæknar. Það væri mikilvægt sér í lagi í dreifbýlinu þar sem menntunarstig sjúkraflutningamanna er að öllu jöfnu lægra en í þéttbýli. Í framhaldi af því var tekin ákvörðun um að gera könnun til að fá betri yfirsýn á málið og var notuð eigindleg aðferðafræði. Tekin voru viðtöl við rekstraraðila sjúkraflutninga, hjúkrunarfræðinga sem höfðu eftir nokkurra ára starf sem hjúkrunarfræðingar menntað sig í sjúkraflutningum og sjúkraflutningamenn sem eftir nokkurra ára starf í sjúkraflutningum fóru að mennta sig í hjúkrunarfræði. Alls níu einstaklinga. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar og mat höfundar eftir að hafa unnið verkefnið eru að æskilegt sé að bjóða hjúkrunarfræðingum upp á menntun í sjúkraflutningum á stigi bráðatækna. Í því er fólginn faglegur, fjárhagslegur og samfélagslegur ávinningur. Þá mun það hugsanlega leiðrétta að einhverju leyti kynjahalla í stétt hjúkrunarfræðinga og sjúkraflutningamanna. Verði hjúkrunarfræðingum gert kleift að nema bráðatækni mun menntunarstig sjúkraflutningamanna á Íslandi hækka en einnig mun það efla og styrkja heilbrigðis- og bráðaþjónustu á landsbyggðinni. Lykilorð: Sjúkraflutningar, bráðatæknar, hjúkrunarfræðingar, menntun sjúkraflutningamanna. The goal of this thesis was to evaluate the benfit of educating nurses in Iceland as paramedics. It would be beneficial in the rural area where the level of paramedic education is lower than in the urban area. In order to explore the benefits it was decided to use a qualitative method and interiviews. Nine individuals were interviewed who had some experience in the ambulance field and or as a manager at the ambulance sevice. The most important findings were that it would be beneficial for the healthcare system to educate nurses as a paramedics. The benefit would be professional, financial and also beneficial for the ...