Það gerist eitthvað stórkostlegt á stuttum tíma : reynsla hjúkrunarfræðinga af notkun dáleiðslu sem hjúkrunarmeðferð við kvíða

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Megintilgangur rannsóknarinnar er að skoða reynslu hjúkrunarfræðinga af notkun dáleiðslumeðferðar við kvíða og um leið að vekja athygli á notkun óhefðbundinna meðferða við kvíða. Kvíði og kvíðaraskanir e...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sunna Lind Kúld 1991-, Birgitta Káradóttir 1986-, Gerður Ágústa Sigmundsdóttir 1992-, Rebekka Ásgeirsdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25036
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Megintilgangur rannsóknarinnar er að skoða reynslu hjúkrunarfræðinga af notkun dáleiðslumeðferðar við kvíða og um leið að vekja athygli á notkun óhefðbundinna meðferða við kvíða. Kvíði og kvíðaraskanir eru algengt heilbrigðisvandamál í samfélaginu í dag og telja höfundar að dáleiðsla og ýmsar aðrar óhefðbundnar aðferðir séu lítið nýttar og þekking á þeim lítil. Höfundar vilja vekja athygli á þeim meðferðum sem í boði eru og kynna dáleiðslu sem hjúkrunarmeðferð. Hjúkrunarfræðingar eru í lykilaðstöðu til að kynna skjólstæðinga sína fyrir hinum ýmsu meðferðarleiðum sem í boði eru og að meta áhrif hjúkrunarmeðferðar á skjólstæðinga sína. Því vildu höfundar rannsaka hvaða reynslu hjúkrunarfræðingar hefðu af notkun dáleiðslu í meðferð og hvort þeir telji hana geta verið árangursríka hjúkrunarmeðferð við kvíða. Kostir dáleiðslu eru margir og má þar nefna að henni fylgja fáar aukaverkanir og er hún kostnaðarlítil fyrir heilbrigðiskerfið. Hún getur aukið sjálfstraust sjúklingsins og bætt hæfni hans til sjálfsbjargar. Í fyrirhugaðri rannsókn er ætlunin að skoða reynslu hjúkrunarfræðinga af notkun dáleiðslu sem hjúkrunarmeðferð við kvíða. Notast verður við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem gagna verður aflað með hálfstöðluðum djúpviðtölum með opnum spurningum. Áætlað er að þátttakendur verði 15 og tekið verður eitt viðtal við hvern þátttakanda. Skilyrði fyrir þátttöku eru að þátttakandi sé hjúkrunarfræðingur, hafi unnið með dáleiðslu í a.m.k eitt ár og hafi notað dáleiðslu sem hjúkrunarmeðferð á fleiri en þrjá einstaklinga með kvíða. Með þessari rannsókn vonast höfundar til að sýna fram á gildi þess að nýta sér dáleiðslu sem hjúkrunarmeðferð við algengum vandamálum líkt og kvíða. Lykilhugtök: Dáleiðsla, óhefðbundnar meðferðir, kvíði, hjúkrunarmeðferð og fyrirbærafræði. This research proposal is a final thesis towards a B.S. degree in nursing studies at the University of Akureyri. The main purpose of this research proposal ...