Átröskun : er von um bata? : rannsóknaráætlun á reynslu aðstandenda einstaklinga með átröskun af heilbrigðiskerfinu og þeim meðferðarúrræðum sem í boði eru.

Tilgangur þessarar ritgerðar var að búa til rannsóknaráætlun til að kanna reynslu aðstandenda einstaklinga með átröskun af heilbrigðiskerfinu og þeim meðferðarúrræðum sem í boði eru. Engar sambærilegar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi. Átröskun er langvinnur sjúkdómur sem ógnar lífi þess sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Sigurveig Jóhannsdóttir 1992-, Lýdía Rós Hermannsdóttir 1991-, Margrét Helgadóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24979
Description
Summary:Tilgangur þessarar ritgerðar var að búa til rannsóknaráætlun til að kanna reynslu aðstandenda einstaklinga með átröskun af heilbrigðiskerfinu og þeim meðferðarúrræðum sem í boði eru. Engar sambærilegar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi. Átröskun er langvinnur sjúkdómur sem ógnar lífi þess sem glímir við hann og hefur líkamlega, andlega og félagslega kvilla í för með sér. Sjúkdómurinn hefur ekki einungis áhrif á þann sem glímir við hann heldur einnig aðstandendur hans. Meirihluti þeirra sem glíma við sjúkdóminn fá meðferð á göngudeild. Helstu tilfinningar sem aðstandendur upplifa eru depurð, ótti, reiði og vonleysi. Oft vita aðstandendur ekki hvert þeir eiga að leita til að fá viðeigandi aðstoð og stuðning fyrir sig og þann sem glímir við átröskunina. Álag á aðstandendur er mikið því þeir eru í lykilhlutverki til að veita stuðning í baráttu hins veika við sjúkdóminn. Erlendar rannsóknarniðurstöður bentu til þess að þörfum aðstandenda einstaklinga með átröskun var ekki mætt á fullnægjandi hátt og þá skorti einna helst upplýsingar og stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki. Við framkvæmd rannsóknarinnar er áætlað að notast við eigindlega rannsóknaraðferð á formi rýnihópa. Rýnihóparnir verða tveir: einn með þátttakendum frá höfuðborgarsvæðinu sem haldinn verður á Landspítalanum við Hringbraut og annar með þátttakendum frá Norðurlandi eystra sem haldinn verður á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í heildina er áætlað að þátttakendurnir verði 16 talsins. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar vona rannsakendur að hægt verði að þróa meðferð um allt land sem mætir óskum og þörfum aðstandenda. Meginhugtök: Átröskun, Aðstandendur, Fjölskyldumeðferð, Hjúkrunarfræðingur, Heilbrigðisstarfsfólk. The main purpose of this thesis is to create a research proposal to explore the experience of family members of people suffering from eating disorders, of the health care system and available treatment options. No similar studies have been conducted in Iceland. An eating disorder is a chronic life-threatening disease that has physical, mental ...