Mat notenda á heilsueflandi heimsóknum : rannsóknaráætlun
Verkefnið er lokað til 15.5.2020. Heilsueflandi heimsóknir eru fyrirbyggjandi heilsuvernd til einstaklinga 80 ára og eldri sem búa í sjálfstæðri búsetu og þiggja ekki heimaþjónustu eða heimahjúkrun. Með fjölgun aldraðra á komandi árum skiptir sköpum að jöfn tækifæri og fjölbreyttir möguleikar séu ti...
Main Authors: | , , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2016
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/24974 |
Summary: | Verkefnið er lokað til 15.5.2020. Heilsueflandi heimsóknir eru fyrirbyggjandi heilsuvernd til einstaklinga 80 ára og eldri sem búa í sjálfstæðri búsetu og þiggja ekki heimaþjónustu eða heimahjúkrun. Með fjölgun aldraðra á komandi árum skiptir sköpum að jöfn tækifæri og fjölbreyttir möguleikar séu til staðar fyrir fólk með ólíkar þarfir. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar sem lýst er í þessari rannsóknaráætlun er annars vegar að kanna hvernig upplýsingar sem veittar eru í heilsueflandi heimsóknum nýtast notendendum og hvort heimsóknirnar séu valdeflandi að þeirra mati. Leitast verður við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða málefni eru til umræðu í heilsueflandi heimsóknum? Hvernig meta notendur áhrif heilsueflandi heimsókna á viðhald og eflingu eigin heilsu? Að hve miklu leyti telja notendur heilsueflandi heimsókna að leitað sé eftir áliti þeirra á þjónustunni sem þeim býðst? Rannsóknin er megindleg og gagna verður aflað með spurningalista sem hannaður er af höfundum rannsóknaráætlunarinnar en forprófaður og aðlagaður af rannsakanda. Þýðið og úrtak eru einstaklingar 80 ára og eldri sem þiggja heilsueflandi heimsóknir og með lögheimili á Akureyri. Gögnin verða greind með forritinu SPSS og við myndræna framsetningu verður notast við Microsoft Excel. Niðurstöðurnar geta gefið mynd af heilsueflandi heimsóknum á Akureyri og endurspeglað viðhorf þáttakenda. Ekki verður hægt að álykta út frá niðurstöðunum um viðhorf og nytsemi notenda heilsueflandi heimsókna utan Akureyrar. Niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst sem framlag til gæðaþróunar á þjónustu við aldraða í heimahúsum með það að markmiði að þeir geti búið lengur heima. Rannsóknarniðurstöður geta vonandi einnig orðið til þess að hvetja til innleiðingar á þessu þjónustuúrræði víðar um land. Lykilhugtök: heilsueflandi heimsókn - heilsa - heilsuefling - valdefling - málefni sem eru rædd í heilsueflandi heimsóknum. Preventive home visits are a form of care for people over 80 years of age living independently without the aid of domiciliary care or home ... |
---|