Ofbeldi gegn öldruðum : skilgreiningar og skilningur aldraðra á ofbeldi gegn öldruðum

Rannsóknarverkefni þetta er unnið til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Rannsókn þessi er forrannsókn. Tilgangur hennar er að dýpka skilning á því hvernig aldraðir skilgreina og skilja hugtakið ofbeldi gegn öldruðum og kanna hvernig fræðilegar flokkanir á ofbeldi gegn öldruðum sa...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elsa Antonsdóttir 1991-, Anna Lára Zoëga 1978-, Margrét Hanna Bragadóttir 1980-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24959
Description
Summary:Rannsóknarverkefni þetta er unnið til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Rannsókn þessi er forrannsókn. Tilgangur hennar er að dýpka skilning á því hvernig aldraðir skilgreina og skilja hugtakið ofbeldi gegn öldruðum og kanna hvernig fræðilegar flokkanir á ofbeldi gegn öldruðum samræmast skilningi aldraðra. Einnig var leitast við að kanna viðhorf aldraðra til fræðslu um ofbeldi gegn öldruðum. Rannsóknin var eigindleg og fellur bæði undir hugtakagreiningu almennings og afleiðandi innihaldsgreiningu. Gögn voru unnin úr viðtölum við sjö einstaklinga sem voru á aldrinum 67 til 92 ára og meðalaldur var 77 ár. Greiningarrammi var gerður út frá skilgreiningum fræðimanna á ofbeldi gegn öldruðum og viðtölin kóðuð samkvæmt honum. Aldraðir skilgreina ofbeldi aðallega sem valdbeitingu og var aðalþemað valdbeiting gegn þeim sem veikari stendur. Farið var með þátttakendum í gegnum þá fimm flokka sem fræðimenn hafa sett fram innan hugtaksins ofbeldi gegn öldruðum, þeir eru: líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt og kynferðislegt ofbeldi ásamt vanrækslu. Þátttakendur voru beðnir um sínar skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig. Rætt var um fræðslu á efninu og kom í ljós að þátttakendurnir voru allir sammála um nauðsyn fræðslu þrátt fyrir að enginn þeirra væri tilbúinn að mæta á slíka fræðslu. Rannsakendur vita ekki til þess að áður hafi verið framkvæmd rannsókn á Íslandi þar sem leitast er eftir skilgreiningum og skilningi aldraðra á hugtakinu ofbeldi gegn öldruðum.Við ályktum að með betri skilning á skilgreiningu aldraðra sjálfra á hugtakinu ofbeldi gegn öldruðum megi frekar taka á vandanum og veita þeim betri aðstoð sem hana þurfa. Lykilhugtök: aldraðir, ofbeldi gegn öldruðum, skilgreiningar, skilningur, fræðsla, eigindleg This research project is a graduate thesis for a B.S. degree in Nursing at the University of Akureyri. With this pilot study, the purpose is to deepen the understanding of how older people define and perceive the concept of elder abuse and to define whether the older people’s definition of ...