Tækifæri í kringum skemmtiferðaskip í Reykjavíkurhöfn : möguleikar á nýrri þjónustu fyrir ferðamenn

Í þessari ritgerð verður leitast við að skoða hvaða frekari tækifæri felast í kringum komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Komum skemmtiferðaskipa til Íslands hefur fjölgað mikið undanfarin ár og farþegafjöldi aukist í takt við það. Ferðaþjónustufyrirtæki og íslenskar hafnir njóta góðs af því en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Björk Pálsdóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24949
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður leitast við að skoða hvaða frekari tækifæri felast í kringum komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Komum skemmtiferðaskipa til Íslands hefur fjölgað mikið undanfarin ár og farþegafjöldi aukist í takt við það. Ferðaþjónustufyrirtæki og íslenskar hafnir njóta góðs af því en þau fyrirtæki sem standa fremst þar eru sameinuð undir hatti Cruise Iceland. Sérstaklega var horft til byrgja eins og TVG-Zimsen á Íslandi og dótturfyrirtæki þess Gáru en þau tvö félög sjá um skemmtiferðaskipin í Reykjavíkurhöfn. Viðtöl voru tekin við framkvæmdastjóra fyrirtækjanna til að fá betri innsýn í framtíðarplön þeirra og þá þjónustu sem þegar er í boði. Notast var við PESTEL greiningu sem greinir hag-félagslegar aðstæður og SVÓT greiningu sem metur annars vegar styrkleika og veikleika og hins vegar tækifæri og ógnanir fyrirtækis í þjónustu við skipin. Tækifæri felast í aukinni þjónustu t.d. pakkaferðum, fjölbreyttari afþreyingu og betra skipulagi. Ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum hafa að jafnaði ekki meira en 8 – 10 klukkustundir í landi og því skiptir hver mínúta máli. Einnig þarf að auka vöruúrval íslenskra afurða bæði til skipanna sjálfra og ferðamanna. Skoðaður er möguleiki þess að opna fríhöfn og metið hvort þörf sé á því þar sem tollfrjáls varningur er um borð í skipinu þegar það er á siglingu. This essay will investigate business opportunities around cruise liners that dock in Reykjavík, Iceland. There has been a drastic increase in the number of cruise liners making their way to Iceland in recent years. Icelandic tourism companies and the docks handling the ships have benefitted the most from this growth, in particular those that have combined under the logo of “Cruise Iceland”. The essay will specifically look to wholesale suppliers such as TVGZimsen and its subsidiary company Gára, which handle cruise liners that dock in Reykjavík to gain better insight into their current operation and future plans by interviewing their executive managers. A PESTEL analysis was performed to understand the ...