Nálgunarbann og brottvísun af heimili : þróun laga nr. 85/2011 og beiting þeirra í heimilisófriðarmálum

Verkefnið er lokað til 11.6.2016. Það hefur lengi vel verið feimnismál að ræða ofbeldi innan veggja heimilis og var vandinn ekki viðurkenndur fyrr en í lok síðustu aldar. Þrátt fyrir tilkomu ýmissa úrræða fyrir þolendur heimilisofbeldis virðist skömmin oftar liggja hjá fórnarlömbum en gerendum, en þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Ósk Guðmundsdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24943
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 11.6.2016. Það hefur lengi vel verið feimnismál að ræða ofbeldi innan veggja heimilis og var vandinn ekki viðurkenndur fyrr en í lok síðustu aldar. Þrátt fyrir tilkomu ýmissa úrræða fyrir þolendur heimilisofbeldis virðist skömmin oftar liggja hjá fórnarlömbum en gerendum, en þar á hún ekki heima. Á meðal þeirra úrræða sem lögfest eru og virka vel í málum sem þessum eru nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Með brottvísun af heimili er geranda gert að yfirgefa heimili sitt í ákveðinn tíma og þannig tekur gerandi skömmina til sín, þar sem hún á réttilega að vera. Nálgunarbann og brottvísun af heimili eru úrræði sem eru tiltölulega ný af nálinni hérlendis en þó nokkur reynsla er komin á framkvæmd þeirra. Úrræðin eru að finna í lögum nr. 85/2011. Þá hefur verið hröð framþróun í lagasetningu og á Alþingi liggur nú fyrir frumvarp sem inniheldur mikilvægar breytingar á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 sem boða mikla réttarbót fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis. Brot gegn nálgunarbanni og brottvísun af heimili eru því miður algeng, en erfitt reynist að fylgja úrræðunum eftir. Með rafrænu eftirliti er hægt að hafa eftirlit með sakborningi og lögreglu tafarlaust gert viðvart þegar brot er framið. Rafrænt eftirlit gæti haft fyrirbyggjandi áhrif og komið alfarið í veg fyrir stórfelld eða ítrekuð brot. It has for long been taboo to discuss violence within the walls of home and the problem was not recognized until the end of the last century. Despite the introduction of various measures for victims of domestic violence the shame seems to lie more often with the victim than the perpetrators, where it does not belong. Among the measures that have been incorporated are the prohibitions and/or expulsion from home. With the expulsion of the home the perpetrator is ordered to leave his home for a certain period of time, thus the perpetrator takes the shame, where it rightfully should be. Restraining orders and expulsions of home are methods that are relatively new in Iceland, but there is already ...