Vegtenging um Skerjafjörð

Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið mikið á stuttum tíma og vegakerfið samhliða því. Mikil umferð um helstu umferðaræðar er orðið daglegt vandamál á höfuðborgarsvæðinu. Því hafa oft sprottið upp umræður hvernig leysa megi úr þeim vanda. Ein hugsanleg lausn er vegtenging yfir Skerjafjörð. Markmið verkefnis...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnar Steinn Clausen 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24867
Description
Summary:Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið mikið á stuttum tíma og vegakerfið samhliða því. Mikil umferð um helstu umferðaræðar er orðið daglegt vandamál á höfuðborgarsvæðinu. Því hafa oft sprottið upp umræður hvernig leysa megi úr þeim vanda. Ein hugsanleg lausn er vegtenging yfir Skerjafjörð. Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að leggja fram fimm tillögur um vegtengingu um Skerjafjörð, lista upp forsendur, bera tillögurnar saman og meta hvort þær séu fýsilegar út frá umferðarlegu sjónarmiði, áður en næstu skref eru tekin og önnur áhrif eins og meðal annars umhverfisáhrif eru metin til hlítar. Hins vegar er einnig lagt upp með að skapa grundvöll fyrir, og koma af stað umræðu um vegtengingu yfir Skerjafjörð. Notast var við nýjustu útgáfuna af umferðarlíkani höfuðborgar-svæðisins sem gefið var út fyrir svæðisskipulag höfuðborgar-svæðisins 2015-2040. Tillögurnar fimm voru keyrðar inn í umferðar-líkanið og niðurstöður bornar saman við þá sviðsmynd sem miðar við lágmarksframkvæmdir og óbreyttar ferðarvenjur fram til ársins 2040. Niðurstöður leiddu ljós að miðað við gefnar skipulagsforsendur er klárlega grundvöllur fyrir því að skoða vegtengingu yfir Skerjafjörð nánar. Besta tillagan að mati höfundar í þessu verkefni er tillaga 5 eða RG1 eins og hún kallast. Áætlað umferðarmagn fyrir hönnunarárið 2040 eru tæplega 16.300 ökutæki á sólarhring og sé litið til umferðarlíkans höfuðborgarsvæðisins árið 2040 sparast rúmlega 18.500.000 km notkun á umferðarnetið á ársgrundvelli ásamt því að meðalaksturstími á hverja ferð styttist. The greater Reykjavík area has grown very fast in recent years and following this the road network has expanded, causing daily problems concerning the capacity of the main roads in the city. Discussions are ongoing on how to solve this problem and one possible solution could be a road connection over Skerjafjörður. The main purpose of this project is to create a foundation in the discussion about whether or not a road connection over Skerjafjörður, between Reykjavík and Álftanes is a feasible ...