Umhverfisbreytingar við Gjögursvatn á Ströndum á Nútíma: Rannsókn á setkjarna

Tilgangur þessa verkefnis er að túlka niðurstöður rannsókna á setkjarna GJÖ15-2A-2B-02 sem tekinn var af ís úr Gjögursvatni á Ströndum veturinn 2015 og sjá hugsanlegar breytingar á umhverfisaðstæðum umhverfis vatnið frá síðjökultíma allt fram til dagsins í dag. Kjarnanum var skipt í tvennt og gerðar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynja Ósk Víðisdóttir Berndsen 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24794
Description
Summary:Tilgangur þessa verkefnis er að túlka niðurstöður rannsókna á setkjarna GJÖ15-2A-2B-02 sem tekinn var af ís úr Gjögursvatni á Ströndum veturinn 2015 og sjá hugsanlegar breytingar á umhverfisaðstæðum umhverfis vatnið frá síðjökultíma allt fram til dagsins í dag. Kjarnanum var skipt í tvennt og gerðar voru mælingar á eðlisþéttleika og segulviðtaki ásamt því að sýnum var safnað til ákvörðunar á hlutfalli lífræns kolefnis og til efnagreininga á gjóskulagi. Augljósar breytingar hafa orðið í setmyndun sem tengja má breytingum í umhverfi og uppruna sets. Neðst í kjarnanum má greina siltríkt jökulættað set með grjótvölum, en ofan á því þykkt gjóskulag og efst lífrænt stöðuvatnaset. Gjóskulagið í kjarnanum er rakið til Grímsvatna og hefur sömu efnasamsetningu og svokölluð Saksunarvatnsgjóska sem féll fyrir 10.300 árum. Túlkun umhverfisbreytinga miðast því við gjóskulagið og hvernig aðstæður voru fyrir og eftir myndun þess. Meginniðurstaða rannsóknarinnar sýnir að fyrir Saksunarvatnsgjóskuna var í gangi afjöklun nálægs jökuls sem setti af sér þykkt jökulrænt set í dældina sem Gjögurvatn liggur í. Fyrir um 10.300 árum hefur dældin hins vegar einangrast í stöðuvatn og lífræn setmyndunarferli hafist sem enn eiga sér stað. Niðurstöður mælinga á kjarnanum úr Gjögursvatni koma ágætlega heim og saman við fyrri sambærilegar rannsóknir á Íslandi sem sýna að jaðrar jökla náðu ekki til hafs þegar Grímsvatnaeldstöðin setti af sér Saksunarvatnsgjóskuna en hana má finna víðsvegar um landið í misþykkum lögum. The aim of this project is to reconstruct Holocene environmental change based on a 255 cm long sediment core (GjÖ15-2A-2B-02) obtained from lake Gjögursvatn, NW Iceland. The sediment core was split in half, visually described and then measured for density and magnetic susceptibility to aid in the interpretation of the origin of the sediment such as the proportion of organic versus minerogenic matter. Samples were taken throughout the core for loss on ignition measurements which gives a further measure of the content of organic ...