Fjórhjólaslys: Komur á Bráðadeild Landspítala árin 2000-2015

Bakgrunnur: Aukning hefur verið á fjóhjólaslysum samhliða aukinni nýskráningu fjórhjóla á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði slasaðra sem komu á Bráðadeild Landspítala eftir fjórhjólaslys árin 2000-2015. Markmið rannsóknarinnar var að auka þekkingu á fjórhjólaslysum. Aðferð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Karen Ívarsdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24773
Description
Summary:Bakgrunnur: Aukning hefur verið á fjóhjólaslysum samhliða aukinni nýskráningu fjórhjóla á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði slasaðra sem komu á Bráðadeild Landspítala eftir fjórhjólaslys árin 2000-2015. Markmið rannsóknarinnar var að auka þekkingu á fjórhjólaslysum. Aðferð: Rannsóknin var afturskyggn og náði til þeirra sem lentu í fjórhjólaslysi og komu á Bráðdeild Landspítala á tímabilinu 2000-2015. Unnið var með gögn úr sjúkraskrá Landspítala, og niðurstöður kynntar á formi lýsandi tölfræði. Breytur sem notaðar voru: Kyn, aldur, komutími, komuár, komumánuður, vikudagur, tími slyss, slysstaður, athöfn, orsök, ICD-10 greining, legutími, þjóðerni, ökumaður eða farþegi. Niðurstöður: Alls leituðu 454 einstaklingar á Bráðadeild LSH eftir fjórhjólaslys. Mikill meirihluti voru karlmenn (78%). Meðalaldur slasaðra var 32 ár og börn voru 18% slasaðra. Að meðaltali voru 30 slys á ári og áttu þau sér helst stað yfir sumarmánuðina og um helgar. Flest slysin voru tengd frítíma (76%). Algengast var að slysin áttu sér stað í dreifbýli og var fall af fjórhjóli og velta algengustu orsakir slysa. Flestir hlutu minniháttar áverka og voru áverkar á útlimi algengastir. Hlutfall þeirra sem lögðust inn á spítala í kjölfar fjórhjólaslysa var 15% og einn lést í innlögn. Hlutfall slasaðra erlendra ferðamanna jókst með árunum og voru þeir 9% allra þeirra sem lentu í fjórhjólaslysi á rannsóknartímabilinu. Ályktanir: Fjórhjól eru hönnuð fyrir akstur utanvegar og hætta getur stafað af því ef ökumaður fer ekki gætilega, því auðvelt getur reynst að velta hjólinu. Fræðsla um notkun fjórhjóla er mikilvæg. Niðurstöður rannsóknarinnar eru mikilvægur þáttur í að greina þróun og umfang fjórhjólaslysa á Íslandi og afla þekkingar á orsökum og afleiðingum fjórhjólaslysa. Introduction: There has been increase in all terrain vehicle (ATV) related accidents, concurrent with an increase in the registration of ATV‘s in Iceland. The purpose of this study is to examine the epidemiology of those who sought the Landspítali ...