Ásýndargreining setmyndana frá síðjökultíma í Breiðdal. Túlkun á byggingareinkennum setmyndana.

Ásýndargreiningu var beitt á u.þ.b. 8 m þykka setlagaopnu suðaustur af Heydölum í Breiðdal. Alls var setmynduninni skipt upp í 24 ásýndir, þar sem lagmót, litur, innri og ytri byggingareinkenni greindu ásýndir hver frá annarri. Skyldar ásýndir voru teknar saman í fjögur megin ásýndarfylki sem notuð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rakel Björk Benediktsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24726
Description
Summary:Ásýndargreiningu var beitt á u.þ.b. 8 m þykka setlagaopnu suðaustur af Heydölum í Breiðdal. Alls var setmynduninni skipt upp í 24 ásýndir, þar sem lagmót, litur, innri og ytri byggingareinkenni greindu ásýndir hver frá annarri. Skyldar ásýndir voru teknar saman í fjögur megin ásýndarfylki sem notuð voru til að túlka setmyndunarumhverfi og breytingar í því. Flestar ásýndirnar í neðri hluta setopnunnar voru mjög fínkorna, silt, leir og fínkorna sandur. Helstu breytingar sem komu fram frá neðstu til efstu ásýndafylkja var öfug lóðgreining, auk þess sem aflögun byggingareinkenna varð meira áberandi eftir því sem ofar dró í setopnunni. Uppröðun ásýnda og ásýndafylkja bendir til þess að neðsti hluti setsins hafi sest til við hærri sjávarstöðu en nú og við tiltölulega lága orku. Öfug lóðgreining, aukin lagskipting, klifrandi gárar og afmyndun byggingareinkenna benda til aukins setmyndunarhraða í óseyrarhlíð við lækkandi sjávarstöðu. Allra efstu setlögin hafa að öllum líkindum sest til á eins konar leirum eða óseyrarpalli. Út frá kortlagningu nánasta umhverfis við setopnuna má telja að setlagaopnan hafi hlaðist upp á mörkum lands og sjávar við lækkandi sjávarmál þegar jökla leysti á síðjökultíma fyrir um 10 – 12 þús árum. Facies analysis is applied to ca. 8 m thick sedimentary section southeast of Heydalir in Breiðdalur, eastern Iceland. A total of 24 sedimentary facies are identified within the section based on sediment boundaries, color, texture and structure. Related facies are grouped into four facies sequences in order to interpret and reconstruct the sedimentary depositional environment. Most of the sedimentary facies are very fine-grained sediment, mud and fine sand. The most apparent changes from bottom to top of the section is a distinct reversed grading with more apparent sediment deformational structures towards the top of the section. Interpretation based on the facies analyses suggests that the bottom facies sequence settled during higher sea level than now and at a relatively low energy. Reversed ...