Af skapandi ferðaþjónustu í skapandi borg: Er Reykjavík með'etta?

Á undanförnum árum hefur orðið vart við vaxandi notkun á hugtakinu sköpun (e. creativity). Hefur hugtakið m.a. notið vaxandi vinsælda í tengslum við þróun og uppbyggingu á borgum sem og í ferðaþjónustu - einkum í hagrænum tilgangi. Með vaxandi samkeppni á alþjóðavísu hafa sumir áfangastaðir, sér í l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónína Lýðsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24716
Description
Summary:Á undanförnum árum hefur orðið vart við vaxandi notkun á hugtakinu sköpun (e. creativity). Hefur hugtakið m.a. notið vaxandi vinsælda í tengslum við þróun og uppbyggingu á borgum sem og í ferðaþjónustu - einkum í hagrænum tilgangi. Með vaxandi samkeppni á alþjóðavísu hafa sumir áfangastaðir, sér í lagi borgir, hugað að því að endurskilgreina sig með nýjum áætlunum og stefnum byggðum á hugmyndafræði eða úrræðum sem tengjast skapandi borg. Ein birtingarmynd þessarar áherslu á sköpun er í gegnum ferðaþjónustu og hefur verið nefnd skapandi ferðaþjónusta. Gildi rannsóknarinnar er að benda á ólíkar hugmyndir um viðfangsefnið. Markmið rannsóknarinnar er margþætt og felur m.a. í sér að gera grein fyrir meginstraumum í umfjöllun um skapandi borg, draga fram umfjöllun um hugsanleg úrræði fyrir stjórnvöld við þróun og uppbyggingu borga og velta upp tækifærum og áskorunum, sem m.a. felast í skapandi ferðaþjónustu. Skoðað er hvernig skapandi ferðaþjónusta getur hugsanlega virkað sem hreyfiafl í borgum. Einnig er markmiðið að skoða hvernig sköpunarhugtakið birtist í fyrirliggjandi skýrslum sem tengjast skipulagsmálum, ferðaþjónustu og menningu í Reykjavík og draga fram í dagsljósið hvaða hugmyndir sérfræðingar og forsvarsfólk, sem tengjast hinu opinbera eða ferðaþjónustunni, hafa um viðfangsefnið. Að lokum er markmiðið að opna umræðu um skapandi borgir og skapandi ferðaþjónustu og þau tækifæri sem felast í menningu og hversdagslífinu. Helstu niðurstöður eru að skapandi ferðaþjónusta getur virkað sem hreyfiafl fyrir skapandi borg í ljósi þess að ferðaþjónustan skapar menningunni sýnileika og grundvöll og getur komið menningu og menningararfleifð á framfæri. Breyttar áherslur í ferðaþjónustu sem komið hafa fram og sem felast m.a. í breyttum kröfum meðal ferðamanna ýta undir þá kenningu og getur skapað tækifæri í nýsköpun. Ef marka má Aðalskipulag og stefnumótanir í ferða- og menningarmálum stefnir Reykjavík í þá átt að verða skapandi borg. Notkun sköpunarhugtaksins, á frekar loftkenndan hátt í fyrirliggjandi skýrslum, ásamt ...