Algengi álagseinkenna hjá CrossFit-iðkendum á Íslandi: Spurningalistakönnun

CrossFit er ung og sívaxandi íþrótt, bæði á Íslandi og um heim allan. Fáar rannsóknir eru til um íþróttina og höfundar vita ekki til þess að nein rannsókn hafi verið gerð um meiðsli eða álagseinkenni í CrossFit á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi álagseinkenna í hnjám, mjóbaki...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigrún Agnarsdóttir Johnson 1989-, Silja Theodórsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24701
Description
Summary:CrossFit er ung og sívaxandi íþrótt, bæði á Íslandi og um heim allan. Fáar rannsóknir eru til um íþróttina og höfundar vita ekki til þess að nein rannsókn hafi verið gerð um meiðsli eða álagseinkenni í CrossFit á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi álagseinkenna í hnjám, mjóbaki og öxlum hjá CrossFit-iðkendum á Íslandi samkvæmt mati þeirra sjálfra miðað við sjö daga tímabil. Einnig voru könnuð tengsl álagseinkenna við magn æfinga og verkjaupplifun. Spurningalisti var sendur út á hópinn „CROSSFIT á ÍSLANDI“ á Facebook og svöruðu 253 (8,9%) einstaklingar honum. Spurningalistinn fól í sér fjóra hluta: (1) grunnupplýsingar, (2) álagseinkenni í hnjám, (3) mjóbaki og (4) öxlum, þ.e. einn hluti fyrir hvern líkamspart. Helstu niðurstöður voru að 147 (58,1%) af þátttakendum höfðu fundið fyrir álagseinkennum í einhverjum af þessum þremur líkamspörtum. Algengasti staðurinn sem fólk fann fyrir álagseinkennum í voru axlir (36,1%), mjóbak (28,4%) og hné (22,0%). Álagseinkenni sem byrjuðu eftir að CrossFit-iðkun hófst voru einnig algengust í öxlum (20%). Niðurstöður úr þessari rannsókn gefa innsýn í álagseinkenni CrossFit-iðkenda á Íslandi sem reyndust vera algeng og þá helst í öxlum. Ekki er möguleiki að meta ástæður einkenna enda einungis um að ræða mat á einkennum þá viku sem listinn var sendur út. Frekari rannsókna er þörf til að ná að meta betur hvort CrossFit valdi þessum álagseinkennum og hversu alvarleg þau eru. CrossFit is a recently emerged and ever-growing sport both in Iceland and globally. However, there is a lack of research into the effects of CrossFit, the authors of this essay are unaware of any published research on injuries or symptoms of overuse within the Icelandic CrossFit community. The objective of this research was to investigate the rate of overuse symptoms in the knees, lower back, and shoulders of CrossFit athletes in Iceland, according to their own experience, over the period of seven days. The connection between overuse injuries, amount of exercise and the experience of pain ...