Áverkar á langbein og liðþófa samhliða fremri krossbandaslitum. Afturskyggn þversniðsrannsókn á niðurstöðum allra segulómunarmynda á hnjám sem teknar voru á Íslandi árin 2000-2011

Inngangur: Fremra krossbandið gegnir lykilhlutverki hvað stöðugleika hnéliðarins varðar. Megin hlutverk þess er að sporna gegn framskriði sköflungs og það er áhyggjuefni ef að það slitnar en það vill svo til að af öllum liðböndum hnéliðarins verður það oftast fyrir alvarlegum áverka. Áverkinn hendir...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Vébjörn Fivelstad 1990-, Sigurjón Björn Grétarsson 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24699
Description
Summary:Inngangur: Fremra krossbandið gegnir lykilhlutverki hvað stöðugleika hnéliðarins varðar. Megin hlutverk þess er að sporna gegn framskriði sköflungs og það er áhyggjuefni ef að það slitnar en það vill svo til að af öllum liðböndum hnéliðarins verður það oftast fyrir alvarlegum áverka. Áverkinn hendir yfirleitt unga virka einstaklinga sem stunda íþróttir af kappi sem innihalda miklar stefnu- og hraðabreytingar. Afleiðingar áverkans eru alvarlegar til lengri tíma litið. Auknar líkur eru á slitgigt næstu áratugina sérstaklega ef aðrir hlutar hnéliðarins verða fyrir áverka samhliða FK slitinu en tilgangur þessarar rannsóknar er að rannsaka tíðni slíkra áverka á langbein og liðþófa. Efni og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn þar sem farið var yfir gagnagrunn sem hýsir allar segulómunar myndgreiningar sem framkvæmdar voru á öllum einstaklingum sem grunaðir voru um að hafa slitið FK á Íslandi árin 2000-2011. Áverkar á langbein og liðþófa voru flokkaðir og tíðni þeirra könnuð með veltitöflum í Töflureikni. Niðurstöður: Af 2298 myndgreiningum uppfylltu 1556 þeirra skilyrði rannsóknarinnar sem voru að um nýtt FK slit væri að ræða. Karlar voru 65% af úrtaki. Miðgildi fyrir aldur karla var 27 ár og kvenna 23 ár. Meðalfjöldi áverka á hvert hné var 2,32. Nýr áverki var á liðþófa í 76% tilfella þar af var nýr áverki á miðlægan liðþófa í 61% tilfella og þann hliðlæga í 48% tilfella. Nýr áverki var á langbein í 62% tilfella en af þeim var beinmar algengast og sást í 60% tilfella. Samantekt: Áverkar á langbein og liðþófa samhliða sliti á FK eru mjög algengir og ber sjúkraþjálfurum að hafa langtíma afleiðingar þeirra í huga þegar skjólstæðingurinn er upplýstur um áverkann og hvað hann ber mögulega í skauti sér. Konur eru almennt yngri að aldri þegar þær slíta FK og þrátt fyrir að meiri líkur séu á því að þær slíti FK er heildarfjöldi þeirra sem slíta FK að miklum meirihluta karlar. Miðlægur liðþófi verður oftar fyrir áverka en sá hliðlægi en áverkar á langbein eru algengari hliðlægt í hnéliðnum. Introduction: The anterior ...