Summary: | Viðfangsefni þessarar ritgerðar er samanburður á þeim reiknilíkönum sem notuð eru til úthlutunar fjármagns til grunnskólastarfs í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík fyrir skólaárið 2015-1016. Farið er yfir hvert markmið og hlutverk reiknilíkana á að vera og viðmið um gæði. Úthlutunarkerfi viðkomandi sveitarfélaga eru greind niður í almenna kennsluúthlutun, úthlutun til sérkennslu, stjórnunar, annarra starfa kennara, annarra starfsmanna og almenns rekstrarkostnaðar. Helstu niðurstöður eru þær að það fjármagn sem sveitarfélögin eru úthluta til grunnskólastarfs í gegnum sín reiknilíkön er mjög svipað, þrátt fyrir mismunandi úthlutun og forsendur.
|