Hver gerir hvað? Úttekt á starfsmannamálum Fiskiðjunnar Bylgju hf.

Ritgerð þessi byggir á úttekt á starfsmannamálum Fiskiðjunnar Bylgju hf. sem er lítið fiskvinnslufyrirtæki staðsett í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Byrjað er að fara yfir fræðin á bakvið mannauðsstjórnun og þróun hennar og mikilvægi. Þetta er gert til þess að auka skilning lesenda á efninu. Einnig er far...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24583
Description
Summary:Ritgerð þessi byggir á úttekt á starfsmannamálum Fiskiðjunnar Bylgju hf. sem er lítið fiskvinnslufyrirtæki staðsett í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Byrjað er að fara yfir fræðin á bakvið mannauðsstjórnun og þróun hennar og mikilvægi. Þetta er gert til þess að auka skilning lesenda á efninu. Einnig er farið í starfsmannastjórnun í sjávarútvegi, þó gögn á því sviði séu takmörkuð, starfsmannastefnu og gildi skipulagsheilda. Næst er farið í rannsóknaraðferðir sem notaðar voru, með hvaða hætti viðtöl fóru fram og hvernig upplýsinga var aflað. Þar er einnig farið yfir annmarka sem kunna að vera til staðar. Saga fyrirtækisins er kynnt og hvar það stendur í dag. Farið er lauslega yfir þá vinnu sem ráðist var í við gerð gæðahandbókar. Úttekt á starfsmannamálum Fiskiðjunnar Bylgju hf. sýnir að þar megi ýmislegt bæta og að fyrirtækið sé ekki komið langt á veg í þeim málum. Farið er í þroskastig mannauðsstjórnunar og fyrirtækið staðsett á þeim skala en einnig farið í gegnum lykilþætti starfsmannastefnu. Að lokum eru svo niðurstöður kynntar og tillögur að úrbótum listaðar.