Þróun starfa íslenskra þroskaþjálfa í alþjóðlegu ljósi

Sérrit 2015 - Hlutverk og menntun þroskaþjálfa Í rannsókninni sem hér er greint frá er sjónum beint að fagstétt íslenskra þroskaþjálfa í alþjóðlegu ljósi. Þroskaþjálfar ganga ýmist undir heitinu social educators eða social pedagogues á alþjóðavettvangi en social education er það hugtak sem alþjóðasa...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Vilborg Jóhannsdóttir 1953-, Kristín Lilliendahl 1955-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24557
Description
Summary:Sérrit 2015 - Hlutverk og menntun þroskaþjálfa Í rannsókninni sem hér er greint frá er sjónum beint að fagstétt íslenskra þroskaþjálfa í alþjóðlegu ljósi. Þroskaþjálfar ganga ýmist undir heitinu social educators eða social pedagogues á alþjóðavettvangi en social education er það hugtak sem alþjóðasamtök þroskaþjálfa, International Association of Social Educators (AIEJI), notar yfir faggreinina þroskaþjálfafræði. Flest fagfélög þroskaþjálfa í Evrópu, þar á meðal Þroskaþjálfafélag Íslands, eru aðilar að samtökunum (Þroskaþjálfafélag Íslands, e.d.). Alþjóðasamtökin hafa unnið að því að styrkja stöðu og samstarf þroskaþjálfa milli landa og í þeim tilgangi hafa þau þróað sameiginleg hæfniviðmið, A Common Platform for Social Educators in Europe, á alþjóðavísu (AIEJI, 2009). Rannsóknargögnin sem eru lögð til grundvallar þessari grein eru hluti af langtímarannsókn sem hefur þann tilgang að skoða þýðingu alþjóðlegs samstarfs fyrir framþróun menntunar og starfa íslenskra þroskaþjálfa. Rannsóknarspurningar sem glímt er við í greininni eru tvær: Hvernig sjá íslenskir þroskaþjálfar stöðu sína, starfshlutverk og helstu áskoranir í starfi; og að hvaða marki má finna mun á faglegri þróun fagstéttar þroskaþjálfa á Íslandi og í öðrum löndum Evrópu? Unnið var samkvæmt eigindlegri rannsóknarhefð. Gagnasöfnun er byggð á hálfopnum við- tölum við íslenska þroskaþjálfa og opinni spurningakönnun. Niðurstöður gefa til kynna að störf og starfshlutverk íslenskra þroskaþjálfa falli vel að hæfniviðmiðum alþjóðasamtaka þroskaþjálfa og helstu forsendum þeirra. Ennfremur að fagstéttin sé samstíga milli landa um áherslur í mörgum mikilvægum málum sem varða núverandi stöðu hennar, áskoranir og sóknarfæri. Færa má rök fyrir mikilvægi alþjóðlegs samstarfs fyrir framþróun fagstéttarinnar hér á landi, ekki síst í ljósi þeirra áskorana sem hún stendur frammi fyrir í breyttu starfsumhverfi. The study described here focuses on the profession of social educators in Iceland in an international context. The profession is known internationally either ...