First North markaðurinn á Íslandi. Hvaða áhrif hefur ný lagabreyting sem heimilar lífeyrissjóðum að fjárfesta fyrir allt að 5% af hreinni eign sinni á markaðstorgi fjármálagerninga á First North markaðinn á Íslandi?

NASDAQ OMX Iceland hf. rekur tvo hlutabréfamarkaði, Aðalmarkað og First North markaðinn. Aðalmarkaðurinn er skipulegur verðbréfamarkaður og uppfyllir samræmd skilyrði Evróputilskipana um skipulegan verðbréfamarkað. First North markaðurinn er markaðstorg fjármálagerninga og er ætlaður smáum og meðals...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnús Andri Pétursson 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24543
Description
Summary:NASDAQ OMX Iceland hf. rekur tvo hlutabréfamarkaði, Aðalmarkað og First North markaðinn. Aðalmarkaðurinn er skipulegur verðbréfamarkaður og uppfyllir samræmd skilyrði Evróputilskipana um skipulegan verðbréfamarkað. First North markaðurinn er markaðstorg fjármálagerninga og er ætlaður smáum og meðalstórum fyrirtækjum í vexti. Hingað til hefur lítil virkni verið á First North markaðnum frá því hann var stofnaður. Smá og meðalstór fyrirtæki veita um 75% Íslendinga atvinnu og er því afar mikilvægt að umhverfi þessara fyrirtækja sé eins gott og mögulegt er. Þann 1. júlí 2015 gekk í gildi lagabreyting sem heimilar lífeyrissjóðum að fjárfesta fyrir allt að 5% af hreinni eign sinni á markaðnum. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir eðli lagabreytingarinnar og reynt að komast að því hvaða áhrif hún gæti haft á First North markaðinn. Til þess að svara rannsóknarspurningunni var farið yfir lagalega umgjörð markaðarins og hann borinn saman við Aðalmarkaðinn. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við forsvarsmenn þriggja af fimm stærstu lífeyrissjóðum landsins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að áhugi lífeyrissjóða á markaðnum er lítill eins og staðan er í dag enda einungis tvö félög skráð á markaðinn. Lífeyrissjóðirnir eru þó að horfa til markaðarins og komi til nýskráningar verður það skoðað. Lífeyrissjóðirnir sjá mikinn kost í því að félög séu skráð á markað og þurfi þar að fylgja strengri kröfum.