Ferðaþjónustumarkaður Borgarfjarðar. Markaðsgreining á ferðaþjónustu í Borgarfirði

Markaðsgreining er mikilvæg fyrir fyrirtæki, hvort sem að þau eru að stefna á nýjan markað eða til að vita betur hvernig markaðurinn er og þekkja hann betur. Greining á markaði er mikilvæg fyrir fyrirtæki, hvort sem að þau stefna á nýjan markað eða vilja læra inná og/eða þekkja nýja markaði. Í þessu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Andrés Kristjánsson 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24515
Description
Summary:Markaðsgreining er mikilvæg fyrir fyrirtæki, hvort sem að þau eru að stefna á nýjan markað eða til að vita betur hvernig markaðurinn er og þekkja hann betur. Greining á markaði er mikilvæg fyrir fyrirtæki, hvort sem að þau stefna á nýjan markað eða vilja læra inná og/eða þekkja nýja markaði. Í þessu verkefni verður framkvæmd greining á markaði ferðaþjónustu í Borgarfirði, þar sem að atvinnugreinin er að verða ein stærsta atvinnugrein Íslendinga. Hvað ferðaþjónustu varðar hefur Borgarfjörður allt upp á að bjóða, hann er staðsettur í nálægð við Reykjavík og náttúran er full af tækifærum. Vegna þessa vildi höfundur skoða hvernig ferðaþjónustumarkaðurinn er í Borgarfirði. Rannsóknarspurning þessarar ritgerðar er því eftirfarandi; Hvert er markaðsumhverfi ferðaþjónustu í Borgarfirði og hvaða þættir hafa áhrif á markaðsumhverfið?. Með markaðsgreiningartólunum PESTEL og TASK var markaðurinn skoðaður, en helstu niðurstöður voru að ferðaþjónustumarkaðurinn í Borgarfirði er vaxandi og þar starfa mörg ólík fyrirtæki. Helstu þættir sem hafa áhrif á markaðinn eru tækni og samkeppni. Tækni er sífellt stærri þáttur í markaðstarfi en einnig í þægindum fyrir ferðamanninn. Samkeppni er einnig stór þáttur á markaði. Ferðaþjónustufyrirtækin í Borgarfirði eiga ekki einungis í innbyrðis samkeppni heldur eiga þau einnig í samkeppni við ferðaþjónustufyrirtæki á öðrum landsvæðum í kring eins og til dæmis suðvesturhorn landsins og Snæfellsnes. Verða því ferðaþjónustu fyrirtæki í Borgarfirði að standa saman í að gera Borgarfjörð að spennandi áfangastað svo að ferðamenn kjósi að heimsækja hann fremur en aðra staði.