Er þörf fyrir heimahjúkrun barna á Akureyri?

Tilgangur rannsóknarinnar var að útskýra heimahjúkrun fyrir börn, greina heilbrigðisþarfir barna, skilgreina heilbrigðisþjónustu barna á Akureyri og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, sem starfar við umönnun barna, til heimahjúkrunar. Sett var fram rannsóknarspurningin; Er þörf fyrir heimahjúkrun barna...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Lilja Björnsdóttir, Edda Björg Sverrisdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/244
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að útskýra heimahjúkrun fyrir börn, greina heilbrigðisþarfir barna, skilgreina heilbrigðisþjónustu barna á Akureyri og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, sem starfar við umönnun barna, til heimahjúkrunar. Sett var fram rannsóknarspurningin; Er þörf fyrir heimahjúkrun barna á Akureyri. Rannsóknir hafa sýnt að heimahjúkrun barna flýtir fyrir bata og dregur úr skaðlegum áhrifum langvarandi sjúkrahúsdvalar á börn. Heimahjúkrun gerir börnum kleift að vera heima og fá jafnframt þá hjúkrun sem þau þurfa og veitir foreldrum stuðning til að takast á við erfiðleika sem fylgja því að eiga veikt eða fatlað barn. Stuðst var við kerfisbundna greiningu þjónustukerfa í rannsókninni, sem felur í sér greiningu þarfa tiltekins hóps og svör við spurningunni hvernig hægt sé að mæta þeim. Rætt var við tvo hjúkrunarfræðinga sem starfa við heimahjúkrun barna, tekin viðtöl við heilbrigðisstarfsfólk sem kemur að umönnun barna, og rætt við móður langveiks barns um reynslu hennar af þjónustu heimahjúkrunar. Aflað var upplýsinga um kostnað vegna heimahjúkrunar barna og sjúkrahúsdvöl á barnadeild og um stöðu heimahjúkrunar í nokkrum nágrannalöndum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að heimahjúkrun barna mætir þörfum veikra og fatlaðra barna og foreldra þeirra og er það í samræmi við stefnu stjórnvalda í réttindamálum barna. Þær sýna einnig að heimahjúkrun er meira en þrisvar sinnum ódýrari en sjúkrahúsdvöl. Flest það heilbrigðisstarfsfólk sem rætt var við taldi að þörf væri fyrir heimahjúkrun barna og að hún kæmi veikum og fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra til góða. Komist var að þeirri niðurstöðu að þörf væri fyrir heimahjúkrun barna á Akureyri. Lykilhugtök: Barnahjúkrun, heimahjúkrun, sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðingar, Akureyri, kerfisbundin greining þjónustukerfa.