Klasar og klasaframtök. Hvernig getur klasaframtakið Álklasinn leitt til aukinnar samkeppnishæfni í áliðnaði á Íslandi?

Áliðnaður ásamt þeirri orku sem hann notar er grunnatvinnuvegur á Íslandi. Um þessar mundir gengur áliðnaður í gegnum miklar breytingar sem tengjast verði á áli, en hægst hefur á vexti eftirspurnar eftir áli í Kína vegna þess að dregið hefur úr hagvexti þar í landi. Umframeftirspurn er eftir áli í h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna María Einarsdóttir 1965-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24378
Description
Summary:Áliðnaður ásamt þeirri orku sem hann notar er grunnatvinnuvegur á Íslandi. Um þessar mundir gengur áliðnaður í gegnum miklar breytingar sem tengjast verði á áli, en hægst hefur á vexti eftirspurnar eftir áli í Kína vegna þess að dregið hefur úr hagvexti þar í landi. Umframeftirspurn er eftir áli í heiminum utan Kína og ef Kínverjar hætta að auka framleiðsluna má búast við að markaðurinn verði fljótur að jafna sig. Samkeppnishæfni getur aukist þegar samlegðaráhrif verða af staðbundinni eða svæðisbundinni klasastarfsemi og dæmi um slíkt er þegar þekking og lærdómur myndast á svæðum eða hjá klösum fyrirtækja tengdum einstaka atvinnuvegum þar sem nýsköpun fer fram. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða þróun áliðnaðar á Íslandi og meta út frá klasafræðum hvernig klasi hefur myndast í kringum iðnaðinn. Varpað verður ljósi á það hvort og þá með hvaða hætti klasaframtak áliðnaðarins (Álklasinn) geti aukið samkeppnishæfni. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í stuttu máli þær að myndast hafa staðbundnir klasar þjónustufyrirtækja á svæðum í kringum álverin en jafnframt hefur þróast klasi fyrirtækja sem starfar þvert á svæðisbundna starfsemi og á milli landshluta. Rannsakanda er ekki kunnugt um að fræðimenn hafi áður birt slíka niðurstöðu um þróun klasa. Rannsókn á klasaframtakinu Álklasinn leiddi í ljós að viðmælendur höfðu jákvætt viðhorf til þess. Sýn á markmið klasaframtaksins var ólík á milli viðmælenda. Til þess að klasinn nái markmiði sínu þarf að efla traust á milli þátttakenda og auka skuldbindingu þeirra. Skerpa á stefnu, auka upplýsingagjöf og kynningar og skapa vettvang fyrir sameiginlega tilboðsgerð. The aluminium industry and the energy it consumes represent a fundamental economic sector in Iceland. The aluminium industry is presently undergoing significant global changes related to aluminium prices, with economic recession cutting back a rising demand for aluminium in China. There is excess demand for aluminium in the world outside China and if the Chinese slow down increasing production rates, a rapid ...