Sníkjudýr og örkjarnar í blóði silfurmáfa (Larus argentatus)

Silfurmáfar (Larus argentatus) eru staðfuglar og dvelja flestir allt árið við Íslandsstrendur. Í þessu rannsóknarverkefni er leitast við að svara því hvort blóðsníkjudýr eða örkjarnar finnist í íslenskum silfurmáfum og ef svo er hversu há tíðni þeirra er. Til að svara þessu var blóð silfurmáfa skoða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurlaug Kjærnested 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24290
Description
Summary:Silfurmáfar (Larus argentatus) eru staðfuglar og dvelja flestir allt árið við Íslandsstrendur. Í þessu rannsóknarverkefni er leitast við að svara því hvort blóðsníkjudýr eða örkjarnar finnist í íslenskum silfurmáfum og ef svo er hversu há tíðni þeirra er. Til að svara þessu var blóð silfurmáfa skoðað með tilliti til blóðsníkjudýra af ættkvíslunum Plasmodium, Haemoproteus og Leucocytozoon. Auk þess sem leitað var að erfðaskemmdum sem birtast á formi örkjarna og annara afbrigðilegra kjarna. Skimun blóðslæða var framkvæmd á 25 blóðsýnum úr jafn mörgum einstaklingum silfurmáfa. Við skimun var leitað að blóðsníkjudýrum og afbrigðilegum kjörnum. Sameindaaðferðum var beitt við að magna upp bút úr hvatberageni sníkjudýra, cytochrome b. Rauntíma PCR (q-PCR) var framkvæmd á 32 sýnum úr jafn mörgum einstaklingum, 28 silfurmáfum og 4 sílamáfum (Larus fuscus). Það mögnuðust níu sýni með q-PCR, 4 sílamáfar og 5 silfurmáfar en einungis komu fram skýr bönd hjá sílamáfum við rafdrátt. Þau sýni sem mögnuðust með q-PCR voru sett í stigbundið PCR og rafdregin á geli. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að við skönnun fundust engin blóðsníkjudýr af ættkvíslunum Plasmodium, Haemoproteus og Leucocytozoon í silfurmáfum heldur fannst eitt sníkjudýr af ættkvíslinni Eimeria og þrjú af ættkvíslinni Trypanosoma. Þessar niðurstöður benda til misræmis á milli aðferða, q-PCR greiningin virðist vera næmari en skönnunin. Það fundust einnig 17 örkjarnar, einn kjarni með útskoti, fimm tvíbleðla kjarnar, átta kjarnar með ílöngum enda og átta kjarnar með holi. Tíðni örkjarna var á bilinu 0 – 0,3‰ hjá silfurmáfum í þessari rannsókn. The Icelandic herring gull (Larus argentatus) population are mostly non-migratory birds that spend their life’s at Icelandic shores. This research project tries to answer the question whether there are any blood parasites or micronucleated erythrocytes in Icelandic herring gulls. To answer the question the blood of herring gulls was examined for blood parasites of genera Plasmodium, Haemoproteus and Leucocytozoon by ...