Samfélagsumræða, samfélagsbreytingar og stjórnmálastarf í Skagafirði 1850−1940

Sagnfræði- og heimspekideild hefur samþykkt lokaðan aðgang í tvö ár eða til 1. júní 2018. Í þessari rannsókn verður fjallað um hvernig samfélagsbreytingarnar sem urðu á Íslandi á árabilinu frá 1850−1940 birtust í Skagafirði. Fjallað verður um valdakerfi 19. aldar og hvernig menn seildust til áhrifa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnar Ingvarsson 1968-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24214
Description
Summary:Sagnfræði- og heimspekideild hefur samþykkt lokaðan aðgang í tvö ár eða til 1. júní 2018. Í þessari rannsókn verður fjallað um hvernig samfélagsbreytingarnar sem urðu á Íslandi á árabilinu frá 1850−1940 birtust í Skagafirði. Fjallað verður um valdakerfi 19. aldar og hvernig menn seildust til áhrifa í héraði og því velt upp hvernig stjórnmálaumræða á landsvísu og stjórnmálakenningar höfðu áhrif á stjórnmálastarf. Fjallað verður um uppbyggingu þéttbýlis á Sauðárkróki, gerð grein fyrir íbúasamsetningu og fjallað um mismunandi hópa fólks eða stéttir sem þar bjuggu. Í tengslum við það verður fjallað um uppgang félagshreyfinga svo sem ungmennafélaga og verkalýðsfélaga. Loks verður fjallað um hvernig stjórnmálaflokkar gerðu sig gildandi í héraðinu og átök þeirra á milli. Lesendum verður gefin innsýn í hugarheim íbúa Skagafjarðar. Hversdagslegar heimildir, sem íbúarnir létu eftir sig í formi bréfa, dagbóka eða annara skjala, verða notaðar til að varpa ljósi á hugmyndir íbúanna. Þá verða gerðabækur félaga og sveitastjórna, auk annarra gagna þar sem hugmyndir almennings og áhersluatriði þeirra koma fram á ólíkum tímum, notaðar jöfnum höndum. Vegna þess víða tímaramma sem ritgerðin tekur til og til að hún geti lýst samfélagsbreytingum á tímabilinu, verður í raun stiklað á steinum. Lýsandi dæmi verða tekin af einstökum málum og þau sett í samhengi við samfélagsþróun og uppbyggingu stjórnmálastarfs á því tímabili sem er til umfjöllunar. This study analyses how the social transformation, which took place in Iceland during the period from 1850 to 1940, affected one region of the country, the northern county of Skagafjörður. The social hierarchy of the 19th century will be explained, and how political debates and ideologies influenced local politics in the period. Special attention will be paid to the development of the town of Sauðárkrókur, which came into being in the late 19th and early 20th centuries, emphasizing the town’s social structure, the relations between its various social groups or classes, and the growing ...