Fötluð börn í grunnskólum: Verklag og líkamleg inngrip

Rannsóknin fjallar um stefnumótun yfirvalda í málefnum fatlaðra barna á Íslandi, með áherslu á réttindi þeirra varðandi líkamlegt inngrip innan grunnskóla. Markmið rannsóknarinnar er annars vegar að skoða stefnumótun yfirvalda á Íslandi í málefnum fatlaðra barna í alþjóðlegu samhengi og hins vegar a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnheiður Anna Þorsteinsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/24132
Description
Summary:Rannsóknin fjallar um stefnumótun yfirvalda í málefnum fatlaðra barna á Íslandi, með áherslu á réttindi þeirra varðandi líkamlegt inngrip innan grunnskóla. Markmið rannsóknarinnar er annars vegar að skoða stefnumótun yfirvalda á Íslandi í málefnum fatlaðra barna í alþjóðlegu samhengi og hins vegar að skoða hvert eftirlitið sé með líkamlegum inngripum í grunnskólum, með áherslu á börn með þroskahömlun og/eða ögrandi hegðun. Notast er við eigindlega aðferðarfræði og rannsóknin er tilviksrannsókn. Gögnum var safnað með viðtölum við átta skólastjórnendur í Reykjavík og með því að skoða lagalegt umhverfi grunnskóla, alþjóðasamninga og stefnumótun yfirvalda. Áhersla var á að tengja niðurstöður viðtalanna við opinbera stefnumótun og mismunandi sjónarhorn fötlunarfræðinnar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru, að stefnumótun í málefnum fatlaðra barna á Íslandi sé að mörgu leyti sambærileg alþjóðlegri þróun, að því leyti að áhersla er lögð á að fötluð börn geti tekið þátt í samfélaginu, til jafns við önnur börn. Þó virðist stefna varðandi réttindagæslu fatlaðra barna í grunnskólum vera óljós. Eftirlit með atvikum þar sem gipið hefur verið til líkamlegs inngrips er lítið og ómarkvisst. Mun skýrari stefna virðist vera í málefnum fatlaðs fólks á stofnunum og eftirlit með atvikum þar sem einstaklingur hefur verið beittur e líkamlegu inngripi er mun meira. Málefni fatlaðra barna virðast þannig hafa orðið útundan í þróun og útfærslu lagasetningar í málaflokknum. Lykilorð: Grunnskólar, Fötlun, Ögrandi hegðun, Réttindagæsla, Nauðung, Eftirlit This thesis describes public policy making relating to disabled children in Iceland, focusing on their rights concerning physical intervention in primary schools. The objective of this research is on one hand to examine the policy making of public authorities in Iceland in the matters of disabled children in an international context, and on the other hand to determine what monitoring exists of physical intervention in primary schools, with an emphasis on children with developmental ...