Líðan grunnskólakennara og mat á hegðun nemenda

Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort líðan grunnskólakennara hefði áhrif á mat þeirra á hegðunarvanda nemenda. Þátttakendur í rannsókninni voru 413 kennarar í átján grunnskólum í Reykjavík. Úrtakið var valið með tilliti til tveggja þjónustumiðstöðva sem þjónusta níu grunnskóla hvor. Rannsók...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Dóra Steinþórsdóttir 1960-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2413
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort líðan grunnskólakennara hefði áhrif á mat þeirra á hegðunarvanda nemenda. Þátttakendur í rannsókninni voru 413 kennarar í átján grunnskólum í Reykjavík. Úrtakið var valið með tilliti til tveggja þjónustumiðstöðva sem þjónusta níu grunnskóla hvor. Rannsóknin var gerð skólaárið 2007-2008. Lagðir voru fjórir listar fyrir grunnskólakennarana; (1) Listi sem saminn var til að afla almennra upplýsinga um þátttakendur meðal annars um almenna ánægju á vinnustað og spurningar um hegðunarvanda nemenda, (2) PSWQ listi sem metur áhyggjur, (3) BAI listi sem metur kvíða og (4) BDI®-II sem metur einkenni þunglyndis. Gerður var samanburður milli skólahverfa og athugað hvort meðaltalsskor grunnskólakennara á listum um eigin líðan fylgdust að við mat þeirra á hegðun nemenda sinna. Gert var ráð fyrir að hærri skor á listunum og erfiðari sýn á hegðun nemenda færi saman. Niðurstöður voru að kennarar sem höfðu miklar áhyggjur, kvíða og einkenni þunglyndis voru líklegri til að meta hegðun nemenda sinna erfiðari en kennarar sem ekki skoruðu hátt á þeim listum. Þetta eru sambærilegar niðurstöður og áður hafa komið fram í rannsóknum á áhrif þunglyndis og annarra vanlíðan á mat foreldra á hegðun barna sinna.